Efling á sviði áfengis- og fíkniefnaforvarna sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga og áfengis- og vímuvarnaráð hafa undirritað samstarfssamning sem ætlað er að efla áfengis- og fíkniefnaforvarnir sveitarfélaga.
Tilgangur samningsins er að efla áfengis- og fíkniefnaforvarnir sveitarfélaga. Samkvæmt honum munu samningsaðilar verja 5,5 milljónum á ári, frá 2003 til 2005, til málaflokksins. Markmiðið með samstarfinu er að stuðla að aukinni fræðslu og forvörnum á þessu sviði hjá sveitarfélögunum og hvetja þau enn frekar til dáða.
Sérstök verkefnisstjórn hefur umsjón með framkvæmd samningsins. Henni er ætlað að hafa samvinnu við aðra sem vinna að forvörnum, s.s. ríkislögreglustjóra, félagasamtök og sveitarfélög.
