Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Bann við áfengisauglýsingum í Svíþjóð

6.3.2003

Í byrjun febrúar 2003 komst áfrýjunardómstóll í Svíþjóð, Marknadsdomstolen, að þeirri niðurstöðu að lög í Svíþjóð sem banna áfengisauglýsingar brjóti gegn reglum Evrópuréttarins. Í kjölfarið hafa margir spurt hvort sama eigi ekki við á Íslandi.

Í byrjun febrúar 2003 komst áfrýjunardómstóll í Svíþjóð, Marknadsdomstolen, að þeirri niðurstöðu að lög í Svíþjóð sem banna áfengisauglýsingar brjóti gegn reglum Evrópuréttarins. Í kjölfarið hafa margir spurt hvort sama eigi ekki við á Íslandi, þ.e. að ekki megi banna að auglýsa áfengi, m.a. hefur komið fram í fjölmiðlum að fremleiðendur innlends bjórs ætli að láta kanna réttarstöðu sína í þessu sambandi. Talsvert hefur verið leitað til Áfengis- og vímuvarnaráðs vegna þessa sem og til að benda á ólöglegar áfengisauglýsingar bæði utandyra og í fjölmiðlum. Framkvæmdastjóri Áfengis- og vímuvarnaráðs, Þorgerður Ragnarsdóttir, ritaði grein um ólöglegar áfengisauglýsingar á Íslandi undir heitinu ,,Kyrktann Emil, kyrkt´ann" og birtist í Morgunblaðinu 12.2.02, (einnig hér undir Greinar), þar sem hún útskýrir hvert sé hlutverk ráðsins hvað þetta snertir.

Einar Páll Tamini, forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík og lektor við lagadeild skólans, ritar grein í Mbl 8. febrúar sl. undir fyrrisögninni ,,Er bannað að banna áfengisauglýsingar?" þar sem hann reifar niðurstöður sænska dómstólsins og hugsanleg áhrif hans á Íslandi. Þar kemur m.a. fram að þó að Svíþjóð sé aðili að Evrópusambandinu en Ísland ekki þá geti niðurstaða dómsins haft einhver áhrif hér á landi. Nefnir hann að þau ákvæði Evrópuréttarins sem auglýsingabannið var talið brjóta gegn voru tekin upp í EES-samningnum, sem Ísland er bundið af. Hann segir alls ekki sjálfgefið að íslenskir dómstólar meti atriði málsins á sama hátt og þeir sænsku en bendir þó á að veruleiki íslensks áfengismarkaðar og lagaumhverfis sé í flestu spegilmynd hins sænska.

Án efa verður framhald á þessari umræðu hér á landi og rétt er að hvetja almenning til að láta í ljós skoðun sína á áfengisauglýsingum við þá sem málið einkum varðar, s.s. stjórnmálamenn, lögreglu, útgefendur fjölmiðla sem auglýsa áfengi og seljendur og framleiðendur áfengis.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica