Um 24.000 Íslendingar skráðu sig gegn lögleiðingu eiturlyfja
Vímulaus æska - Foreldrahús stóð fyrir alþjóðlegri undirskriftasöfnun til staðfestingar ,,Vínaryfirlýsingunni 2003
Um 24 þúsund Íslendingar skrifuðu nöfn sín til staðfestingar Vínaryfirlýsingunni 2003:
,,Við lýsum því yfir og staðfestum þá skoðun okkar að sáttmálar Sameinuðu þjóðanna um eiturlyf ( 1961, 1971 og 1988 ) og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna (33. grein) séu ómissandi verkfæri í því starfi að viðhalda mannúðlegri löggjöf sem kemur í veg fyrir neyslu eiturlyfja og má beita til að bregðast við tilraunum til að lögleiða eiturlyf."
Undirskriftalistar hafa verið sendir til UNN í Svíðþjóð en þeir verða afhentir Sameinuðu þjóðunum í apríl nk.
