87% landsmanna vilja ekki lögleiðingu kannabisefna
Niðurstöðurnar eru ekki síst áhugaverðar í ljósi nokkuð mikillar umræðu um lögleiðingu kannabisefna síðastliðið vor en það var einmitt í kjölfari hennar sem Áfengis- og vímuvarnaráð ákvað að láta gera könnunina. Niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós, svo ekki verður um villst, að íslenskt samfélag vill ekki að notkun kannabisefna verði leyfð. Þetta þykir áhugavert og var m.a. sagt frá könnuninni og birt viðtal við Þorgerði Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra ÁVVR, á forsíðu Morgunblaðsins 25. ágúst 2003.
Hringt var í 1.250 manns á aldrinum 16 til 75 ára og var svarhlutfallið 67,2%. Meðal þess sem fram kemur er að mikill meirihluti svarenda, eða 79%, telur að neysla kannabisefna myndi aukast ef notkun þeirra yrði leyfð. Einnig að 72% aðspurðra hefðu engan áhuga á að prófa efnin þótt þau væru lögleg.
Þeir svarendur sem einhvern tíma höfðu prófað hass eða maríjúana voru 24,7%. Í árslok 2001 var gerð sambærileg könnun og miðað við hana sést að þarna hefur orðið örlítil hækkun en þá var hlutfallið 23,5%. Mikill meirihluti svarenda nú, eða 81,3%, sögðu að meira en 12 mánuðir væru síðan þeir hefðu prófað vímuefnið og af öllum sem höfðu prófað sögðust 19% hafa notað það reglulega. Áhyggjuefni þar er að 31% neytendanna er ungt fólk á aldrinum 16-24 ára.
Í könnuninni nú sögðust 8% svarenda hafa prófað önnur ólögleg vímuefni og þar var mest um neyslu á amfetamíni, eða 76,8%. Þeir sem hafa prófað kannabisefni eru flestir á aldrinum 25-34 ára og mjög lítill hluti, eða 2%, er yfir 55 ára aldri. Fleiri karlmenn en konur hafa neytt kannabisefna, eða 32% karla á móti 17% kvenna. Einnig eru fleiri karlmenn en konur sem neytt hafa annarra ólöglegra vímuefna, eða 12% karla á móti 5% kvenna og á þetta við alla aldursflokka.
