Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Úthlutun úr Forvarnasjóði 2010

2.6.2010

Úthlutað hefur verið úr Forvarnasjóði fyrir árið 2010. Að þessu sinni er ríflega 71 milljón kr. úthlutað til 79 verkefna þar af er sérstök fjárveiting, 15 milljónir, sem ætluð er til sérstakra heilsueflingaverkefna. Alls bárust umsóknir um 129 verkefni.

Forvarnasjóður er skilgreindur í lögum um gjald af áfengi. Árið 1996 var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum úr sjóðnum og þetta er því í 14. sinn sem styrkjum er úthlutað. Það er heilbrigðisráðherra sem úthlutar úr sjóðnum að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs, sem metur umsóknirnar í samstarfi við Lýðheilsustöð.

Í ár voru umsóknir metnar með tilliti til stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla heilsugæsluna og lýðheilsustarf og forvarnir á þeim grunni, eins og kom fram í auglýsingu um umsóknir úr sjóðnum.

Upplýsingar um úthlutunina veita: rafn(hjá)lydheilsustod.is og johann(hjá)lydheilsustod.is


Skrá yfir úthlutun úr Forvarnasjóði 2010 (PDF)
Deildu með öðrum

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica