Vefsíða fyrir fagfólk um lífsstílsbreytingar
Opnuð hefur verið vefsíðan frjáls.is sem ætluð er fagfólki, einkum á heilbrigðissviði, þar sem bent er á leiðir til að hvetja og styðja fólk til lífstílsbreytinga. Landlæknir, Geir Gunnlaugsson, opnaði síðuna formlega í dag í Heilsugæslunni í Mjódd að viðstöddu fjölmenni.
Heilbrigðisstarfsfólk gegnir veigamiklu hlutverki í forvörnum og heilsueflingu í daglegum störfum sínum. Í því sambandi er mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk og annað fagfólk hafi það fyrir vana að spyrja skjólstæðinga sína út í lífstílsvenjur þeirra, til dæmis um tóbaksneyslu, áfengisneyslu, matarræði, daglega hreyfingu og svefn. Það getur verið hvatning fyrir skjólstæðing að skoða lífstíl sinn og íhuga breytingar á honum þegar hann finnur fyrir áhuga fagfólks. Jafnframt sýnir það að innan heilbrigðisþjónustunnar er málefnið talið skipta máli fyrir velferð skjólstæðingsins.
Frjáls.is er vefsíða fyrir fagfólk sem vill efla þekkingu sína á leiðum til að aðstoða skjólstæðinga við lífstílsbreytingar. Á síðunni er fræðilegt efni um lífstílsbreytingar og hagnýt ráð um hvernig gott er að bera sig að í daglegu starfi þegar ræða á um lífstílsbreytingar við skjólstæðinga. Kynnt er aðferðafræðin áhugahvetjandi samtal sem leið í samskiptum fagfólks og skjólstæðinga, sem gefist hefur vel við að aðstoða fólk við lífstílsbreytingar. Aðferðafræðin nýtist til að hjálpa fólki við breytingar á hvaða lifnaðarháttum sem er en sérstakar leiðbeiningar eru um aðstoð við að hjálpa fólki að hætta að nota tóbak og draga úr eða hætta óhóflegri áfengisneyslu.
Efni vefsíðunnar er hugsað sem e.k. fræðslubanki þar sem hægt er að sækja sér efni til lesturs og fræðslu, til að viðhalda þekkingu sinni og færni í starfi, prófa þekkingu sína, æfingar og svo ýmislegt ýtarefni og efni til að afhenda skólstæðingum.
Frjáls.is var unnin af Lýðheilsustöð í samstarfi við Landlæknisembættið, Landspítalann og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Kynning á notkun og innihaldi síðunnar (PDF)
Myndir frá opnun vefsíðunnar Frjáls.is:
![]() |
![]() |
|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Dreifðu um vefinn









