Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Unglingar á Íslandi standa sig betur en jafnaldrar þeirra í Evrópu

22.10.2009

Reglulega er kannað hér á landi hvernig unga fólkið okkar stendur sig í samanburði við jafnaldra sína t.d. í Evrópu. Ein slík rannsókn er ESPAD-rannsóknin á vímuefnaneyslu 15-16 ára unglinga í 35 Evrópulöndum. Margt ánægjulegt kemur fram í niðurstöðum nýjustu rannsóknarinnar (2007), hvað snertir unga fólkið á Íslandi, sem ástæða er til að halda á lofti. Niðurstöðurnar sýna m.a. að ungmenni á Íslandi eru almennt til mikillar fyrirmyndar og standa sig yfirleitt betur en flestir jafnaldrar þeirra í Evrópu.

 

 

Samantekt á niðurstöðum úr ESPAD 2007 

Unglingar á Íslandi standa sig greinilega vel í evrópskum samanburði. Á undanförnum árum hefur dregið úr reykingum og neyslu löglegra og ólöglegra vímuefna. Full ástæða er til að hrósa unglingunum, fjölskyldum þeirra og síðast en ekki síst grunnskólum landsins vegna þessa. Jafnframt er ástæða til að hvetja alla til halda áfram árangursríku samstarfi um velferð ungs fólks á Íslandi.

Niðurstöðurnar sýna m.a. að ...

  • 90% drengja og 92% stúlkna hafa aldrei notað kannabisefni
  • 85% drengja og 82% stúlkna hafa ekki reykt sígarettur síðustu 30 daga.
  • 72% drengja og 65% stúlkna hafa ekki notað áfengi síðustu 30 daga.

Leiðréttum ofmat

Unglingar hafa tilhneigingu til að ofmeta hversu margir jafnaldrar þeirra reykja og neyta áfengis og ólöglegra vímuefna en gera það í raun og veru. Ofmatið ýtir undir félagsþrýsting sem leitt getur til þess að fleirum en annars finnst jákvæðara að prófa. Mikilvægt er því að koma á framfæri niðurstöðum, sem sýna stöðuna eins og hún er, til að leiðrétta þetta ofmat. Slík leiðrétting á ofmati er árangursrík aðgerð í forvörnum. 

Á veggspjaldi, sem Lýðheilsustöð gerði, sést hvernig staðan er.

Á myndunum hér fyrir neðan má sjá samanburð á reykingum og neyslu áfengis og kannabisefna meðal unglinga á Íslandi og í Evrópu. Á mynd 1 sést að um þriðjungur unglinga á Íslandi hafa aldrei prófað áfengi, tóbak eða vímuefni og skera þeir sig úr jafnöldrum sínum í Evrópu.

Evrópusamanburður, ESPAD 2007. Smellið á mynd til að stækka 

 

Mynd 1. Aldrei prófað sígarettur, áfengi og ólögleg vímuefni.
Hlutfall 15–16 ára nemenda (10. bekkur) í Evrópu sem aldrei höfðu prófað sígarettur, áfengi eða ólögleg vímuefni 2007.

 

ESPAD 2007, hlutfall 15-16 ára sem ekki höfðu reykt. smellið á mynd til að stækka 

Mynd 2. Ekki reykt s.l. 30 daga
Hlutfall 15-16 ára nemenda í Evrópu sem ekki höfðu reykt sígarettur síðastliðna 30 daga, 2007.
Myndin sýnir að 85% drengja og 82% stúlkna hafa ekki reykt sígarettur síðustu 30 daga.

 

ESPAD 2007, ekki drukkið áfengi s.l. 30 daga. Smellið á mynd til að stækka.

 

Mynd 3. Ekki drukkið áfengi s.l. 30 daga
Hlutfall 15-16 ára nemenda í Evrópu sem ekki höfðu drukkið áfengi síðastliðna 30 daga, 2007.
Á mynd 3 sést að 72% drengja og 65% stúlkna hafa ekki notað áfengi síðustu 30 daga.

ESPAD 2007, aldrei notað kannabisefni. Smellið á mynd til að stækka

 

 

Mynd 4. Aldrei notað kannabisefni
Hlutfall 15-16 ára nemenda í Evrópu sem aldrei höfðu notað kannabisefni um ævina
, 2007.

Myndin sýnir að 90% drengja og 92% stúlkna hafa aldrei notað kannabisefni.

 

 

Frekari upplýsingar má finna á http://www.espad.is/, og http://www.lydheilsustod.is/media/afengi/annad/KynninESPAD.pdf

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica