SAFT - 10 netheilræði
SAFT
Lýðheilsustöð er í samstarfi um SAFT-verkefnið en Heimili og skóli hafa umsjón með því. SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni - er vakningarátak um örugga nýmiðlanotkun barna og unglinga hér á landi. Verkefnið er hluti af ,,Safer Internet Action Plan" aðgerðaráætlun Evrópusambandsins um örugga netnotkun og er styrkt af ESB.
Örugg netnotkun
Útbúinn hefur verið bæklingur með 10 netheilræðum, sem allir nemendur í 1. – 4. bekk grunnskóla fá á næstunni. Þar eru góð ráð fyrir foreldra um aðstoð við börn og unglinga til að þau læri að nota tölvur og netið á ákvæðan og öruggan hátt. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér heilræðin og nýta sér þau í leik og starfi við nýmiðlanotkun fjölskyldunnar. (Með því að smella á myndina af heilræðunum hér að ofan opnast pdf skjal með bæklingnum, sem hægt er að skoða og prenta út, ef vill).
Ungmennaráð SAFT
Á vegum SAFT verkefnisins hefur einnig verið sett á laggirnar ungmennaráð. Í ráðinu á sæti ungt fólk á aldrinum 12-18 ára af öllu landinu. Ráðið mun meðal annars vinna að hugmyndum um hvernig eigi að kenna ánægjulega og örugga netnotkun í skólum landsins, koma að hönnun kennsluefnis, vera ráðgefandi um hönnun og framkvæmd herferða, sinna jafningjafræðslu og halda erindi á foreldrafundum.
Nýverið hafa krakkar í ráðinu meðal annars skrifað greinar í blöð um hvernig meta megi áreiðanleika efnis á netinu. Þau eru einnig með Facebook-síðu og hafa sent áskorun til skólastjórnenda um að haldin verði sérstök þemaviku um jákvæða og örugga netnotkun.

