Úthlutun úr Forvarnasjóði og Styrktarsjóði ungs fólks án atvinnu
Hluti styrkþega Forvarnasjóðs, ásamt Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra og Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur, setts forstjóra Lýðheilsustöðvar.
Skrá yfir úthlutun úr Forvarnasjóði 2009.
Um Forvarnasjóð
Tilgangur Forvarnasjóðs er að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði áfengis- og vímuvarna í samræmi við stefnu og forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í áfengis- og vímuvörnum hverju sinni.
Styrkir eru veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingum eru að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsóknaverkefna. Næst verður auglýst eftir umsóknum úr sjóðnum í janúar 2010.
Áherslur Lýðheilsustöðvar vegna úthlutunar úr Forvarnasjóði árið 2009
- Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum í eða utan skóla.
- Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig hægt sé að meta árangur verkefnisins.
- Heilbrigðisráðherra úthlutar úr sjóðnum að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs sem metur umsóknirnar í samstarfi við Lýðheilsustöð.
- Einnig áskilja styrkveitendur sér rétt til að skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis.
- Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.

Bæði amma og barnabarn hlutu styrk. Sigrún Aðalbjarnardóttir hlaut styrk úr Forvarnasjóði og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir úr Styrktarsjóði ungs fólks án atvinnu.
Fyrsta úthlutun úr Styrktarsjóði ungs fólks án atvinnu
Lýðheilsustöð styrkir í sumar ungt atvinnulaust fólk til að vinna að verkefnum sem hafa heilsueflingu og/eða forvarnir að markmiði og stuðla að tóbaksleysi. Til ráðstöfunar verða 5 milljónir króna en miðað er við að einstaklingar geti fengið 50.000 kr. styrk til að vinna verkefni sem stendur yfir í 2 vikur í sumar og að hámarki 150.0000 kr. fyrir verkefni sem stendur yfir í 6 vikur.
Umsækjendur vinna að verkefninu í sumar og fá greiddan styrk eftir framvindu verksins. Nokkrir geta unnið saman að einu verkefni (hámark 5 saman). Styrkhæf verkefni þurfa að stuðla að heilsueflingu eða hafa forvarnagildi og innihalda skilaboð tengd tóbaksvörnum.
Skilyrði fyrir styrkveitingu eru að umsækjandi
- sé fæddur á tímabilinu 1989-1992
- sé án atvinnu þann tíma sem hann vinnur að verkefninu
- noti ekki tóbak, né aðrir þátttakendur í verkefninu
Fyrsta verkefnið
Styrkþegar ásamt Viðari Jenssyni, verkefnisstjóra tóbaksvarna, og Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, setts forstjóra Lýðheilsustöðvar.
Fyrsta verkefnið sem hlýtur stuðning úr sjóðnum kallast Djammreykingar eru líka slæmar en að því standa Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, Blædís Klara Baldursdóttir, Iðunn Ýr Halldórsdóttir, Sigríður María Lárusdóttir og Unnur Sara Eldjárn.
Verkefnishöfundar ætla að vinna að því í 6 vikur í sumar að gera stuttmynd sem sýnir m.a. hvernig fólk byrjar að reykja og „djammreykingar“, form á reykingum sem töluvert er um en hefur ekki verið mikið fjallað um til þessa. Þegar lokið hefur verið við myndina í sumar ætla höfundar að bjóða grunn- og framhaldsskólum að nýta sér hana, t.d. í lífsleiknitímum.
Fyrsti umsóknarfrestur var til 7. júní 2009 en nú hefur frestur verið framlengdur til 22. júní. Sjá vefsíðu verkefnisins.
Myndir frá úthlutuninni í Austurbæ - húsi unga fólksins
|
Hljómsveitin Reginfirra á sviðinu í Austubæjarbíói. |
Hljómsveitarmeðlimir léku eigin tónverk, sem áheyrendum líkaði auðheyranlega mjög vel. |
|
Fundargestir nutu tónlistar Reginfirru. |
Hluti fundargesta. |
|
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, settur forstjóri Lýðheilsustöðvar, bauð gesti velkomna og kynnti dagskrá. |
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, úthlutaði styrkjum úr Forvarnasjóði. |
|
Í Austurbæjarbíói er starfrækt kaffihús og starfsmenn sáu um að afgreiða veitingarnar. |
Fundargestir ræða saman yfir veitingunum. |
|
Fundargestir ræða saman. Ef myndin er stækkuð má sjá yngsta fundargestinn í fanginu á pabba sínum. |
Veitinga notið og málin rædd. |












