Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar? - Næsti Náum áttum fundur

24.5.2009

naum_attumNæsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 27. maí og ber yfirskriftina „Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar?“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning

Samstarfshópurinn Náum áttum hefur um árabil staðið fyrir morgunverðarfundum þar sem rædd eru mikilvæg samfélagsmál. Fundirnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir og skráning fer fram til kl. 17 þriðjudaginn 26. maí.

Vefsvæði Náum áttum

Þátttökugjald eru 1.500 kr., sem þarf að staðgreiða, og morgunmatur er innifalinn í gjaldinu.
ATH! Fyrirtæki eða stofnanir geta fengið sendan reikning fyrir þátttökugjaldi einungis gegn beiðni sem skilað er á staðnum.

Fulltrúar sem sitja í panel og verða með stutt innlegg í byrjun:

1. Bergþóra Valsdóttir, framkv.stj. SAMFOK; SAMAN hópurinn kynnir sumarverkefni sitt

2. Líney Rut Halldórsdóttir, framkv.stj. ÍSÍ íþrótta- og æskulýðsstarf ÍSÍ í sumar

3. Sæmundur Runólfsson, framkv.stj. UMFÍ Landsmótin í sumar

4. Ragnheiður Ragnarsdóttir, fræðslustjóri BÍS Mótahald og annað sumarstarf

5. Halldór Reynisson, verkefnastjóri á fræðslusviði Biskupsstofu Kirkjustarf - æskulýðsstarfið í sumar

6. Arnfríður S Valdimarsdóttir, verkefnastjóri unglingamála Barna- og unglingastarf ÍTR í sumar

7. Fulltrúar SÍF (samtök íslenskra framhaldsskóla) Framhaldsskólar; sumarstarf, vinna, jafningjafræðsla

8. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn Lögreglan, þátttaka í mótahaldi og viðburðum

Fundarstjóri: Þórólfur Þórlindsson

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica