Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkis. Næsti „Náum áttum“ -fundur
Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. febrúar og ber yfirskriftina „Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkis“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraningSamstarfshópurinn Náum áttum hefur um árabil staðið fyrir morgunverðarfundum þar sem rædd eru mikilvæg samfélagsmál. Fundirnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir og skráning fer fram til kl. 17 þriðjudaginn 17. febrúar.
Dagskrá fundarins má sjá með því að smella á myndina hér til hægri; hún opnast þá sem .pdf-skjal í nýjum glugga.
