Forvarnasjóður - auglýst er eftir umsóknum um styrki
Tilgangur Forvarnasjóðs er að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði áfengis- og vímuvarna í samræmi við stefnu og forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í áfengis- og vímuvörnum hverju sinni. Styrkir eru veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingum eru að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsóknaverkefna.
Áherslur Lýðheilsustöðvar vegna úthlutunar úr Forvarnasjóði árið 2009
- Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum í eða utan skóla.
- Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig hægt sé að meta árangur verkefnisins.
- Heilbrigðisráðherra úthlutar úr sjóðnum að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs sem metur umsóknirnar í samstarfi við Lýðheilsustöð.
- Einnig áskilja styrkveitendur sér rétt til að skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis.
-
Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.
Umsóknareyðublöð og aðrar nánari upplýsingar eru á síðu Forvarnasjóðs.
