Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Nýtt fræðsluefni um áhrif áfengisneyslu

22.1.2009

Hvað veistu um áfengi? Fræðslubæklingur fyrir ungt fólk. Smella á mynd til að skoða bæklinginn. Lýðheilsustöð hefur gefið út endurskoðaða útgáfu af fræðslubæklingnum Hvað veistu um áfengi? Um er að ræða útgáfu ætlaða ungu fólki og miðast efnistök og útlit við lesendahópinn.

Bæklingurinn er aðgengilegur öllum hér á vefsíðu Lýðheilsustöðvar og þar er hægt að panta hann en kynningarefni um hann er sent til allra framhaldsskóla í landinu, þar sem einkum forvarnafulltrúar eru beðnir um að hafa umsjón með afhendingu hans. Einnig til skólastjóra og skólahjúkrunarfræðinga í grunnskólum, þar sem viðkomandi meta hvort þeir telja fræðsluna eiga erindi við elstu nemendur skólans.

Áfengisbæklingur - formáli. Smella á mynd til að stækka. Í inngangi kemur fram hvers vegna verið sé að gefa út fræðsluefni um áhrif áfengisneyslu þar sem m.a. er nefnt að ástæða þess að lög banna að fólki yngra en 20 ára sé veitt eða selt áfengi sé til að vernda heilsu unga fólksins. Að áfengið hafi skaðleg áhrif á mörg líffæri, þ.á.m. heilann sem er að vaxa og þroskast a.m.k. til tvítugs. Velji unga fólkið áfengisneyslu, þrátt fyrir allt, þá koma fram í bæklingnum margs konar upplýsingar sem að gagni kunna að koma til að skaðinn af áfengisneyslu verði minni en ella.

Panta bækling.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica