Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Áfram örugg netnotkun

14.1.2009

SAFT. Smellið á merkið til að opna vefsíðu SAFT. Lýðheilsustöð er nú formlegur samstarfsaðili SAFT-verkefnisins um örugga netnotkun, sem Heimili og Skóli stýrir. Nýlega var undirritaður samningur til næstu tveggja ára um að Evrópusambandið styðji verkefnið áfram. Auk Lýðheilsustöðvar, sem mun m.a. vinna að ýmsum fræðslumálum og ráðgjöf, er Capacent Gallup nú formlegur aðili að verkefninu en á þeirra vegum verður gerð viðamikil könnun á net- og nýmiðlanotkun Íslendinga.

SAFT_hopurinn,_jan._2009

Markmið SAFT er að standa að vakningarátaki um örugga og jákvæða notkun netsins og nýmiðla meðal barna og unglinga, foreldra, kennara, fyrirtækja í upplýsingatækni, fjölmiðla og stjórnvalda. Viðfangsefnin snúa einkum að því að fræða og styðja börn og foreldra í að njóta netsins og nýrra miðla á jákvæðan og öruggan hátt.

SAFT er í formlegu samstarfi við önnur lönd í Evrópu og deilir með þeim upplýsingum, aðferðafræði og þekkingu. Markmiðið er að til verði sameiginlegur evrópskur sjóður þekkingar og aðferðafræði á þessu sviði sem styður hið jákvæða og hamlar neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar.

           Á myndinni hér t.h. eru: Ólafur Magnússon, frá  Capacent Gallup, Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, Jenný Ingudóttir, frá Lýðheilsustöð og Björk Einisdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla.

Nýtt fræðsluefni um örugga netnotkun

Forsíða DVD disks um netnotkun. Smellið á myndina til að opna vefsíðu um diskinn.

Starfið er þegar komið á fullt skrið og auk rannsókna um net og tölvunotkun, sem er í umsjá Capacent, var nýlega gefinn út DVD diskur með kennslu- og myndefni um ábyrga og jákvæða netnotkun. Disknum hefur verið dreift til allra grunnskóla landsins en á honum eru fjórar fræðslumyndir um örugga og jákvæða netnotkun, auk fimm stuttra leikþátta sem nemendur Háteigsskóla sömdu og fluttu í Borgarleikhúsinu á liðnu ári.

Frekari upplýsingar um dvd diskinn eru á vefsíðu SAFT

 

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 10. febrúar

Framundan er Alþjóðlegi netöryggisdagurinn en þetta árið verður athygli vakin á einelti á netinu. Dagurinn verður þann 10. febrúar en frekari upplýsingar um hann birtast er nær dregur.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica