Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Samstarf biskups Íslands og tollstjóra í Reykjavík um forvarnir gegn fíkniefnum

26.12.2003

Biskup Íslands og tollstjórinn í Reykjavík hafa skrifað undir samstarfssamning um forvarnafræðslu gegn fíkniefnum fyrir fermingarbörn.

Tollfulltrúinn Þorsteinn Haukur Þorsteinsson hefur undanfarin misseri farið í allmargar kirkjur með fíkniefnahundinn Bassa og spjallað við fermingarbörn um forvarnir gegn fíkniefnum.
Hafa þessar heimsóknir mælst vel fyrir og vakið mikinn áhuga fermingarbarnanna, samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu.

Samstarfssamningurinn sem biskup og tollstjóri undirrita í dag gengur út á að bjóða öllum fermingarbörnum á landinu, en þau eru hátt á fjórða þúsund, upp á fræðslu af þessu tagi, auk þess sem fermingarbörnin fá margmiðlunardisk með fróðleik um heilbrigt líferni, skaðsemi fíkniefna o.fl.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica