Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

400 ungmenni á forvarna- og æskulýðsballi

26.11.2003

Árlegt Forvarnar og æskulýðsball 14 skóla af Vesturlandi, úr Dölum og frá Hólmavík fór fram s.l. fimmtudagskvöld á Hótel Borgarnesi.

Er þetta í 11. árið sem þessi hátíð er haldin og mættu rúmlega 400 ungmenni að þessu sinni í Borgarnes. Kvöldið er sett upp af nemendafélagi grunnskólans ásamt félagsmiðstöðinni Óðali og má segja að þarna séu unglingarnir sjálfir að setja upp forvarnardag eins og þau sjálf vilja sjá hann í framkvæmd.   Unglingarnir fengu að þessu sinni barmmerki með slagorði um reykingar, hraðaakstur, vímuefni, Nei þýðir nei og fleira sem þau sömdu sjálf. Síðan var kvöldvaka með frábærum skemmtiatriðum frá öllum skólunum. Hljómsveitin Papar lék fyrir dansi til miðnættis.
Mikið fjör var enda þema kvöldsins kántrýklæðnaður.
Mikill vaxtarbroddur er í unglingahljómsveitum og einar 5 unglingahljómsveitir tróðu upp þetta kvöld. Ekki eitt agabrot kom upp þetta frábæra kvöld.
Hátíðin var styrkt af Forvarnasjóði, Landflutningum og Hótel Borgarnesi.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica