Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Færri vilja að áfengi sé selt í matvöruverslunum

14.3.2008

Lýðheilsustöð lét í ársbyrjun kanna viðhorf landsmanna til sölu bjórs og léttvíns í verslunum og sýna niðurstöður að nú vilja færri en áður að áfengi sé selt í matvöruverslunum.

Lýðheilsustöð fékk Capacent Gallup til að gera könnun í janúar sl. og samkvæmt niðurstöðum hennar fjölgar í hópi þeirra sem eru andvígir sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum miðað við fyrri kannanir. Þá vex einnig andstaða við sölu á sterku áfengi en um 86% aðspurðra segjast andvígir sölu á sterku áfengi í matvöruverslunum.

Mynd: Andvígir sölu áfengis í verslunum. smella á mynd til að stækka.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Mynd 1.
Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar andvígir sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum

 

Samkvæmt skoðanakönnuninni, sem gerð var dagana 9.-22. janúar 2008, hækkar hlutfall þeirra sem eru mjög andvígir sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum úr 19% árið 2005 í 35% árið 2008. Á sama tíma lækkar hlutfall þeirra sem eru mjög fylgjandi sölunni úr 35% árið 2005 í 23% nú. Samtals eru 47,4% mjög eða frekar andvígir sölu á bjór og léttvíni í verslunum og 46,9% mjög eða frekar fylgjandi henni. Þá segjast 85,8% aðspurðra vera andvíg sölu á sterku áfengi í verslunum.

Stuðningur við sölu á bjór og léttvíni er meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Stuðningur við sölu áfengis í matvöruverslunum minnkar eftir því sem fólk er eldra.

Skýrsla Capacent Gallup um könnun á viðhorfi til sölu áfengis í matvöruverslunum, janúar 2008.

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica