Lýðheilsustöð tekur undir viðvaranir lögreglunnar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað við auknu framboði af e-töflum. Sérstakur áhættuhópur hvað e-töflurnar varðar er ungt fólk og þar sem um er að ræða mjög hættulegt efni þykir lögreglu ástæða til þessara varúðarráðstafana. Lýðheilsustöð tekur undir varnaðarorð lögreglunnar.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hélt fund um málið í dag. Þar kom m.a. fram að framboð e-taflna hefur ekki verið mjög áberandi hérlendis frá árinu 2001. En í síðasta mánuði var lagt hald á töluvert magn e-taflna í svokölluðu Pólstjörnumáli. Það er sterk vísbending um stöðu mála en MDMA-duft er notað í e-töflur.
Hér er um að ræða hættulegt efni og hefur Lýðheilsustöð birt upplýsingar um það og skaðsemi þess á heimasíðu sinni, m.a. grein Matthíasar Halldórssonar, landlæknis, auk þess sem gefinn var út sérstakur fræðslubæklingur, Staðreyndir um vímuefni, þeirra á meðal e-töfluna, sem dreift var til allra framhaldsskóla og fleiri staða þar sem búast má við ungu fólki. Í tengslum við bæklinginn voru einnig gefin út veggspjöld þar sem stuttlega er fjallað um skaðsemi neyslu e-pillunnar og hass.
Panta bæklinginn Staðreyndir um vímuefni
