Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Áfengisverð og aðgengi að áfengi hefur áhrif á áfengisneyslu

20.7.2007

Í umræðu um forvarnir og áfengismál ber oft á þeim misskilningi að forvarnir snúist eingöngu um fræðslu um skaðsemi áfengis og ábyrgt uppeldi barna. Öflugt forvarnarstarf felst ekki síður í réttum stjórnvalds-aðgerðum. Niðurstöður fjölda rannsókna hafa sýnt að aðgengi og verð á áfengi eru lykilþættir sem ákvarða heildar áfengisneyslu hverjar þjóðar.

Á meðan áfengisverð á Íslandi er hvað hæst í Evrópu þá er áfengisneysla hér hvað minnst. Á síðustu áratugum hefur áfengisneysla á Íslandi aukist úr 4,0 lítrum af hreinum vínanda á hvern einstakling 15 ára og eldri árið 1985 í 7,2 lítra árið 2006 (að miða við 15 ára aldur er alþjóðleg aðferð við að mæla áfengisneyslu þjóða). Þessi aukning hefur átt sér staða á sama tíma og áfengisverð hefur lækkað verulega að raungildi og aðgengi almennings að áfengi aukist með breyttum verslunarháttum ÁTVR. Ekkert bendir til að þekking almennings á skaðsemi áfengis hafi minnkað á þessum árum.

Reynsla annarra þjóða sýnir að tilslakanir í áfengismálum geta haft miklar skaðlegar afleiðingar á heilsu íbúanna vegna aukinnar áfengisneyslu.

 

Sjá nánar skýrsluna Áfengi engin venjuleg neysluvara



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica