Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Bæjar- og útihátíðir - ábyrgð skipuleggjenda og foreldra

11.7.2007

Unglingar á Ingólfstorgi. Smella á myndina til að stækka. Með hverju árinu fjölgar þeim stöðum á landinu þar sem á sumrin er boðið upp á bæjar- og/eða útihátíð, landsmönnum yfirleitt til ánægju og yndisauka. Lýðheilsustöð vill þó vekja athygli foreldra og skipuleggjenda þessara hátíða á þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir hvað varðar þátttöku barna og ungmenna í hátíðahöldunum.

Fleiri tækifæri til að neyta áfengis

Fleiri bæjar- og útihátíðir fjölga nefnilega þeim tækifærum sem ungt fólk hefur því miður oft nýtt sér til að neyta áfengis og jafnvel annarra vímuefna. En hátíðir, sem þessar, ættu að standa undir því nafni og vera hátíð og skemmtun - ekki allsherjar drykkjupartí, með tilheyrandi ólátum, ofbeldi, ölvunarakstri, kynferðisofbeldi og slysum. Til að svo megi vera þarf að vera gott aðhald og eftirlit með því að hátíðin fari vel fram.

Ábyrgð á áfengisneyslunni

Foreldrar, bæjaryfirvöld og skipuleggjendur þurfa að sameinast um að gera hátíðirnar eftirminnilegar vegna skemmtunarinnar og ánægjustundanna en ekki fyrir unglingadrykkjuna og leiðinlegum eftirmálum hennar. Það eru í gildi lög varðandi neyslu áfengis og það þarf að framfylgja þeim – útihátíðir eru þar engin undantekning. Þeir sem standa að hátíðarhöldunum verða að bera ábyrgð á því að hún fari vel fram og að reglum sé framfylgt. Fullorðnir mega svo ekki gleyma því að þeir eru fyrirmynd þeirra yngri.

Skemmtun með aðhaldi

Unglingsstúlkur í grasi. Smella á mynd til að stækka. Auðvelt er fyrir fjölskylduna að njóta þess að skemmta sér saman á hátíðunum, jafnvel þó unglingnum sé gefinn laus taumur – það má bara ekki sleppa honum. Séu foreldrar aftur á móti að íhuga að leyfa unglingnum sínum að fara einum á útihátíð, útilegu eða í sumarbústað með vinunum ættu þeir að hafa eftirfarandi að leiðarljósi:

Lokaspurning, til að spyrja sig, gæti verið sú hvort það sé áhættunnar virði að leyfa unglingum að fara?

Höfum alla vega hugfast að það er hlutverk okkar fullorðnu að vernda börnin okkar eftir megni fyrir hættum. Það gerum við m.a. með því að sýna börnunum okkar aðhald og umhyggju – sem þýðir m.a. að segja „nei“, þegar það á við.

(Ljósmyndir: Ragnar Th.)


Meira tengt þessum málum:

Skemmtum okkur vel í sumar

Ungt fólk og skaðleg áhrif áfengis

12 atriði til umhugsunar fyrir foreldra

Áhættuhegðun ungmenna - aðhald foreldra

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica