Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Skemmtum okkur vel í sumar!

- nýjar auglýsingar Lýðheilsustöðvar -

14.6.2007

ungl_skil

Áfengi og áfengisneysla er hluti af því samfélagi sem við búum við. Neyslan fer reyndar vaxandi og salan eykst á sumrin. Í sumar munu birtast nýjar auglýsingar Lýðheilsustöðvar sem minna landsmenn á að áfengisneyslunni fylgir ábyrgð.

Sumarið eru skemmtilegur tími á Íslandi og landsmenn njóta vel björtu daganna og náttanna. Skilaboð auglýsinganna eru einmitt þau að skemmta sér vel í sumar, þ.e. að njóta þess að vera til og láta ekki ytri aðstæður, s.s. ofneyslu áfengis, skemma fyrir sér.
Einnig að ungt fólk, yngra en 20 ára, hefur ekki aldur til að drekka – og að þeir fullorðnu í samfélaginu beri ábyrgð á velferð unga fólksins. Auglýsingarnar munu birtast á sjónvarpsstöðvunum og í prentmiðlum.

gardur

 

Skoða sjónvarpsauglýsingu – Garðveisla

 

Skoða sjónvarpsauglýsingu – Unglingi skilað heim

 

 

 

Áfengisneyslu fylgir ábyrgð

Áfengi er lögleg neysluvara en ekki að sama skapi venjuleg neysluvara. Áfengisneyslu fylgir því miður oft á tíðum slys, ofbeldi, margvíslegir líkamlegir (og andlegir?) kvillar, auk samfélagslegra vandamála, sérstaklega þegar um ofneyslu er að ræða.

Í nýju auglýsingunum eru þeir fullorðnu minntir á afleiðingar ofneyslu áfengis; að þeir sem eru að neyta þess eða veita það hafi í huga að áfenginu fylgir ábyrgð. Ábyrgð á eigin neyslu og afleiðingum hennar, og að veita þeim áfengi sem augljóslega hefur þegar fengið meira en nóg.

 

Unglingi fylgir ábyrgð

Oft er sagt: ,,Það þarf heilt þorp til að ala upp barn”. Segja má að þetta séu undirliggjandi skilaboðin í auglýsingunni sem minnir á að unglingi fylgir ábyrgð. Samfélagslegur þrýstingur verður oft til þess að ungt fólk, sem ekki hefur aldur til, fer að drekka áfengi. Reynslan sýnir okkur að neysla unga fólksins hefur margar slæmar afleiðingar fyrir líf þess og heilsu. Hinir fullorðnu í samfélaginu verða að vera vakandi fyrir þessu og muna að þeir bera ábyrgð á velferð og heilsu unga fólksins.

 

Ungt fólk og skaðleg neysla áfengis

Áfengi - engin venjuleg neysluvara

Hvað veist þú um áfengi?



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica