Ábyrgð - öllum í hag
Markmið með Ábyrgð – öllum í hag er m.a. að stuðla að samvinnu, umræðu og sameiginlegu vinnulagi hvað varðar ábyrgð og hlutverk margra sem koma að þessum málum. Megin markmið er að draga úr slysum og ofbeldi tengdu áfengis- og vímuefnaneyslu, að starfsfólk verði hæfara í að takast á við erfiðar aðstæður og leysa vandamál sem upp koma og að eigendur veitinga- og skemmtistaða og starfsfólk verði meira vakandi fyrir því að bera ábyrgð á eigin öryggi sem og gestanna á staðnum.
Fyrirmynd að verkefninu er fengin frá hinum Norðurlöndunum, þar sem það hefur náð að festa rætur vítt og breitt um samfélagið, m.a. hefur það verið við lýði í Svíþjóð, með góðum árangri í meira en tíu ár.
Námskeiðshald fyrir veitingahúsafólk
Ábyrgð – öllum í hag felur í sér að haldið er námskeið fyrir eigendur og starfsfólk veitinga- og skemmtistaða. Þar fá þátttakendur m.a. leiðsögn í mögulegum leiðum til að fyrirbyggja eða leysa vandamál sem upp kunna að koma á staðnum.
Viðfangsefnin eru:
o Vandamál leyst
o Áfengislöggjöfin
o Skyndihjálp vegna vímuefnanotkunar og áfengisneyslu
o Tegundir vímuefna
o Samvinna við lögreglu og á milli staða
o Stefna viðkomandi skemmtistaða hvað varðar neyslu vímuefna á staðnum
o Reynslusögum og þekkingu miðlað.
Unnið hefur verið kennsluefni, fyrir námskeiðið, ásamt upplýsingahefti fyrir veitinga- og skemmtistaði sem taka þátt. Undirbúningur að verkefninu fór fram í samvinnu við Ríkislögreglustjórann. Þegar hafa verið haldin námskeið fyrir starfsfólk veitinga- og skemmtistaða í Reykjanesbæ og fyrir dyraverði í Dyravarðafélaginu ehf. Fyrirhuguð eru námskeið á Akureyri. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt hafi samband við verkefnisstjóra áfengis- og vímuvarna hjá Lýðheilsustöð: rafn@lydheilsustod.is
Smella á myndina til að skoða heftið.
Reykjanesbær vill öruggara skemmtanalíf
Nýverið var undirritað tímamótasamkomulag á milli bæjaryfirvalda, lögreglu og veitingamanna í Reykjanesbæ. Samkomulagið felur m.a. í sér aðgerðir sem koma eiga í veg fyrir að ofbeldi sé beitt eða vímuefni notuð á skemmtistöðum í Reykjanesbæ.
Meðal aðgerða má nefna:
- samkomulag um styttri opnunartíma,
- að 1-2 dyraverðir á viðkomandi stöðum hafi hlotið samþykki lögreglu og sótt námskeið Ábyrgð – öllum í hag,
- að alltaf séu til stað dyraverðir af báðum kynjum.
Dyraverðir eru í gulum einkennisvestum og eru í beinu talstöðvarsambandi við lögreglu. Lögreglan stefnir að því að vera mætt á staðinn innan 3 mínútna frá útkalli.
