Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

SAMAN-hópurinn fær Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007

24.4.2007

lydheilsuverdlaun07_2Íslensku lýðheilsuverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn, í morgun, 24. apríl 2007, og voru verðlaunin afhent af Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Ákveðið var að veita SAMAN-hópnum Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra. Afhending verðlaunanna fór fram í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru veitt í samræmi við áherslur sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur kynnt á sviði forvarna og heilsueflingar. Auglýst var eftir tilnefningum til verðlaunanna og bárust á fimmta tug tilnefninga frá fyrirtækjum, einstaklingum og stofnunum. Nefnd á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis var ráðherra til aðstoðar við mat á tilnefningum.lydheilsuverdlaun07

SAMAN-hópurinn er samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana sem láta sig varða velferð barna. Markmið hópsins er að styðja og styrkja foreldra, einkum í tengslum við tímabil eða sérstaka atburði þegar talið er líklegt að aukning verði á neyslu vímuefna meðal ungmenna. SAMAN-hópurinn varð til um áramótin 1999 – 2000 og hefur starfað óslitið síðan. Hópurinn hefur staðið að gerð og útgáfu auglýsinga, fræðsluefnis og kynningarefnis til dæmis þegar 10. bekkingar útskrifast úr grunnskóla, á haustin þegar útivistartími barna styttist, á 17. júní og um verslunarmannahelgina.

Fullrúar úr SAMAN-hópnum voru viðstaddir afhendinguna


lydheilsuverdlaun07_3SAMAN-hópurinn er gott dæmi um öflugt tengslanet talsmanna um lýðheilsu en í hópnum sameina rúmlega tuttugu aðilar krafta sína, sveitarfélög, opinberar stofnanir og frjáls félagasamtök. Aðilar að SAMAN hópnum eru: Akureyrarbær, Seltjarnarnesbær, Garðabær, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Mosfellsbær, Sveitarfélagið Álftanes, Kópavogur, Barnaheill, Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Heilsugæslan í Reykjavík, Heimili og skóli, IOGT, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Ný leið - ráðgjöf, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjórinn, SAMFOK, Umboðsmaður barna, Vímulaus æska, Þjóðkirkjan og Lýðheilsustöð.

Geir Bjarnason gjaldkeri SAMAN-hópsins tók við verðlaununum sem afhent voru af Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra

Handhafi Íslensku lýðheilsuverðlaunanna fær annars vegar veglegan verðlaunagrip, styttu úr gleri á grágrýtisstöpli eftir Ólöfu Davíðsdóttur í Brákarey, en hins vegar 500 þúsund króna fjárupphæð.

Vefsíða SAMAN-hópsins

Dæmi um útgefið efni SAMAN-hópsins



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica