Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Forvarnasjóður - umsóknir um styrki skilist inn fyrir 1. febrúar

30.1.2007

Minnt er á að síðasti dagur til að skila inn umsóknum um styrki úr forvarnasjóði er 31. janúar. Einungis er tekið við umsóknum sem skilað er á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar.
Tilgangur Forvarnasjóðs er að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði áfengis- og vímuvarna í samræmi við stefnu og forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í áfengis- og vímuvörnum hverju sinni. Styrkir eru veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingum eru að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsóknaverkefna.

Sjá nánar



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica