Styrkir úr Forvarnasjóði 2007
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og eru styrkir veittir til verkefna eða afmarkaðra rannsókna. Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum á mismunandi skólastigum eða ungu fólki utan skóla. Þá er auglýst sérstaklega eftir verkefnum sem taka til félagslegrar stöðu ungs fólks og ungs fólks af erlendum uppruna.
Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig hægt sé að meta árangur verkefnisins. Lýðheilsustöð metur umsóknirnar í samstarfi við áfengis- og vímuvarnaráð og er áskilinn réttur til að senda umsóknir til umfjöllunar fagaðila og óska eftir nánari upplýsingum um verkefni, framkvæmdaaðila og fjármögnun. Einnig áskilja styrkveitendur sér rétt til að skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis. Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2007 og skal sótt um á sérstökum eyðublöðum.
