E-taflan er alltaf hættuleg
sjúkrahús eftir slíka neyslu. Neysla E-töflu er alltaf hættuleg og vegna atburða helgarinnar hefur Lögreglan Í Reykjavík verið að vara sérstaklega við notkun E-töflunnar - og undir þau varnaðarorð tekur Lýðheilsustöð.Fréttin um lát ungu konunnar, sem lést aðfaranótt sunnudags, birtist á vef Lögreglunnar í Reykjavík, og víðar, og þar kom fram að lögreglan vildi vara sérstaklega við notkun E-taflna. Talið er að unga konan hafi keypt E-töflu af óþekktum aðila, sennilega á laugardagskvöld. Einnig er sagt frá því að tveir ungir menn voru fluttir
alvarlega veikir á sjúkrahús á sunnudagsmorgun eftir að hafa tekið inn E-töflur. Í ljósi þessara alvarlegu atburða telur lögreglan rétt að vara sérstaklega við notkun E-taflna því neysla þeirra er ávallt hættuleg.
Fræðsla um áhrif neyslu vímuefna
Lýðheilsustöð gaf út á árinu 2005 fræðslubæklinginn Staðreyndir um vímuefni þar sem fram koma upplýsingar um áhrif neyslu E-töflu og fleiri vímuefni.
Hægt er að panta bæklinginn beint af síðu Lýðheilsustöðvar.
