Veitum frelsi - en sýnum ábyrgð!
verslunarmannahelgina. Í flestum tilfellum gengur allt vel á slíkum hátíðum en eins og reynslan hefur sýnt hafa því miður komið upp tilvik þar sem ungt fólk hefur lent í vanda – sem væntanlega hefði mátt koma í veg fyrir hefðu foreldrar eða aðrir fullorðnir verið með í för.Félagsmálaráðuneytið, í samstarfi við marga aðila og þeirra á meðal Lýðheilsustöð, birtir nú í tengslum við verslunarmannahelgina skilaboð og hvatningu til foreldra og foráðamanna um að hafa velferð barna sinna í huga og svara neitandi ósk um að fá að fara á útihátíð ef barnið er ekki orðið 18 ára. Aftur á móti er vel hægt að verða við óskinni ef foreldrar eða aðrir fullorðnir eru með í för. Þeir fullorðnu gefa þá unga fólkinu nokkuð lausan tauminn – en sleppa honum ekki!
Sjá einnig:
