Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Ungt fólk og skaðleg neysla áfengis

31.3.2006

Smella á mynd til að stækkaLandsmenn vita að áfengiskaupaaldur á Íslandi miðast við 20 ár. Samt sem áður sýnir reynslan að yngra fólk – og oft mun yngra – er að neyta áfengis og það jafnvel í mjög miklu og skaðlegu magni. Þetta sýnir líka að aðgengi unga fólksins að áfengi er tiltölulega auðvelt og að eldra fólk er að kaupa eða útvega ungu fólki, sem ekki hefur aldur til, áfengi. Því lengur sem ungt fólk dregur það að hefja áfengisneyslu því betra fyrir heilsu þess og vellíðan.
Úr áfengislöggjöfinni:

18. gr. Óheimilt er að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára.
Ávallt þegar ástæða er til að ætla að kaupandi eða viðtakandi áfengis hafi ekki
náð þessum aldri skal sá sem selur, veitir eða afhendir það láta hlutaðeiganda
sanna aldur sinn með því að sýna skilríki með mynd eða á annan fullnægjandi hátt.



Áfengiseitrun

Fram hefur komið að mjög ungt fólk er jafnvel að taka þátt í drykkjukeppni og er þá að taka mikla áhættu. Að neyta áfengis í mikilu magni á skömmum tíma.getur verið lífshættulegt.

Viðtal er við Bjarna Össurarson, lækni á vímuefnadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss, í Fréttablaðinu í dag, þar sem hann er spurður um áfengiseitrun: ,,Áfengi slævir miðtaugakerfið. Slævingin fer eftir því hversu mikið áfengismagn er í blóðinu. Ef fólk drekkur sterkt áfengi og innbyrðir það á skömmum tíma getur það leitt til þess að fólk missi meðvitund. Svo mikil slæving hefur einnig áhrif á öndunarstöðvarnar, svo og hjarta- og æðakerfið. Ástandið getur endað með því að fólki lendi í dái og fari í öndunarstopp. Einkennin eru hæg og lítil öndun. Þá getur orðið blámi á húð, lágur blóðþrýstingur og veikur púls. Ekki er hægt að ná neinu sambandi við viðkomandi.”

Áfengi skaðar heilastarfssemi ungs fólks

Heili ungs fólks er í mótun og er því sérlega viðkvæmur fyrir þeim skaðlegu áhrifum sem áfengi getur haft. Áfengi getur ekki einungis skaðað eða skapað vandræði, s.s. ölvunarakstur, slys, áhættuhegðun, o.s.frv., heldur getur það einnig skaðað eiginleika heilans til að læra. Það sem rannsóknir sýna m.a. er:

  • Heili ungs fólks er að þroskast og mótast og vegna þessa þá er hann viðkvæmari en heili fullorðinna fyrir truflunum eins og ölvunardrykkju. Rannsóknir á dýrum sýna að mikil áfengisneysla á unga aldri hefur varanleg, skaðleg áhrif á heilann.
  • Rannsóknir hafa einnig sýnt smávægilega en mikilvæga breytingu á heilanum hjá ungu fólki sem drekkur oft eða sýnir einkenni áfengissýki. Áhrifin eru m.a. skertur eiginleiki til að leysa vandamál/þrautir, skert vinnsluminni og sjónsvið.
  • Margar alvarlegar geðraskanir fullorðinna koma fram á unglingsárunum og er áfengi sérstakur áhættuþáttur hvað það varðar. Sérstaklega er bent á athyglisbrest, geðklofa og geðhvarfasýki.

Heilinn er ekki talinn fullþroska fyrr en eftir tvítugt

Smella á mynd á mynd til að stækkaMikilvægt er því að seinka eins og hægt er að áfengisdrykkja hefjist hjá ungu fólki, þ.e.a.s. hjá þeim sem á annað borð velja að neyta áfengis. Heilinn er flókið verkfæri sem er í mótun og í þroskaferli og er ekki talinn fullþroska fyrr en um 25 ára aldurinn. Mikilvægt er því að sporna við allri unglingadrykkju og er bjór þar engin undantekning.

Einnig má benda á að talið er að líkurnar á að einstaklingar þrói áfengissýki minnki um 14% með hverju árinu sem upphafi áfengisneyslu er seinkað. Auk ofangreinds má ítreka og benda á skaðlegar afleiðingar áfengisneyslu, s.s. óhöpp og slys sem rekja má beint til áfengisvímunnar, ásamt félagslegu tjóni sem snertir m.a. fjölskylduna, vini og atvinnulífið. Sem og þann skaða sem getur orðið á líffærum vegna mikillar eða langvarandi áfengisneyslu (listi yfir nokkra helstu þætti):

Taugakerfið Ofskynjanir, krampar, skemmdir á litla heila, eitrun í heila vegna lifrarskemmda, heilabilun, geðtruflanir, svefntruflanir, taugaskemmdir
Meltingarfæri Brjóstsviði, magabólgur, blæðingarí melitngarfærum, briskirtilbólga, aukin hætta á krabbameini í munnholi, koki og vélinda, niðurgangur, skorpulifur,
Hjartað Aukinn hjartsláttur, truflun á hjartslætti, skemmdur hjartavöðvi, hár blóðþrýstingur
Áhrif á efnaskipti Truflun á stjórn blóðsykurs, skert geta á próteinframleiðslu, uppsöfnun fitu í lifrinni,vítamínskortur,
Hormónar Minnkandi testósteron - getuleysi
Vöðvar og bein Vöðvarýrnun og beinþynning
Blóð Breytingar á rauðum blóðkornum, lægra hlutfall af blóðflögum
Fóstur Hamlar vexti, andlegur misþroski, vanskapnaður

Hvað veistu um áfengi?

Smella á myndina til að stækkaEn margir spyrja hvort ekki sé í lagi að drekka í hófi og þá aðallega bjór og létt vín? Og líka hvað hversu mikið sé óhætt að drekka í einu og hvað sé skaðleg áfengisneysla? Lýðheilsustöð hefur gefið út bæklingana Hvað veist þú um áfengi? annars vegar fyrir ungt fólk og hins vegar fyrir þá eldri. Þar er leitast við að svara algengustu spurningunum um áfengisneyslu. Myndirnar hér á síðunni eru teknar úr bæklingnum en jafnframt er hér hægt að skoða bæklingana í heild sinni og panta þá, en þeir eru ókeypis.

Ennfremur hefur bæklingurinn fyrir fullorðna legið frammi í Vínbúðunum.

     

 Fræðslubæklingar um áfengi

 Hvað veist þú um áfengi? ungt fólk

Bæklingur fyrir ungt fólk, smella á mynd til að skoða bæklinginn.

PANTA

Hvað veist þú um áfengi? fullorðnir

Bæklingur fyrir fullorðna, smella á mynd til að skoða bæklinginn.

PANTA





Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica