Staðreyndir um vímuefni
Fræðslubæklingur Lýðheilsustöðvar um skaðsemi vímuefnanotkunar, sem einkum er ætlaður ungu fólki á framhaldsskólaaldri. Bæklingurinn nefnist Staðreyndir um vímuefni, og er hluti af verkefni sem kallast ,,Höldum heilanum heilum”.Vantað hefur fræðsluefni um áhrif neyslu vímuefna og með bæklingnum er verið að bregðast þar við. Hugmyndin með verkefninu í heild sinni er að vekja ungt fólk til umhugsunar um þau áhrif og afleiðingar sem verða á starfssemi heilans við það að neyta vímuefna. Miðað við þær góðu viðtökur sem sending sýnishorna af efninu hefur fengið í skólum landsins er ljóst að áhuginn er mikill.
,,Höldum heilanum heilum" -verkefninu fylgja, auk bæklingsins, 2 gerðir af veggspjöldum - Hægan! og Gatari! - sem og barmmerki sem vísa í efni bæklingsins. Við hönnun verkefnisins var haft í huga að útlitið, ásamt innihaldi, höfði til ungs fólks. Hönnuðurinn er Björgvin Ólafsson, sem m.a. er kennari við fjölbrautarskóla.
Áhugasamir panti hjá Lýðheilsustöð
Sýnishorn hafa verið send til allra framhaldsskóla á landinu og þeim boðið að panta það magn sem þeir hafa áhuga á að fá. Einnig í grunnskóla landsins og skólastjórnendur beðnir að meta hvort þeir geti nýtt fræðsluefnið í forvarnastarfi skólans. Gert er ráð fyrir að það séu forvarnafulltrúar og/eða námsráðgjafar í skólunum sem skipuleggi dreifingu fræðsluefnisins innan skólans. Einnig að veggspjöldin verði hengd upp á viðeigandi stöðum.
Nemendur geta sýnt vilja sinn, í að taka þátt í forvarnverkefninu, í verki með því t.d. að bera barmmerkin eða næla þeim í skólatöskurnar - og forsvarsmenn nemendafélaga í framhaldsskólunum hafa verið beðnir um að stuðla að því að merkin verði sýnileg.
| Barmmerki | ||
|---|---|---|
![]() |
![]() |
![]() |
Auk skólanna hafa nokkrum fleiri aðilum verið send sýnishorn af fræðsluefninu og þeir beðnir að senda pöntun, óski þeir eftir að fá meira af efninu sent. Aðrir áhugasamir geta pantað efnið rafrænt hér í gegnum heimasíðuna.
Bæklingurinn og veggspjöldin eru ókeypis, einungis þarf að greiða sendingarkostnað.
Við pantanir er best að nota viðeigandi pöntunarform í Útgefnu efni.
Ýtarefni
Um leið og þetta nýja fræðsluefni var sent til skólanna, og víðar, var í bréfi með sendingunni bent sérstaklega á ýtarefni og frekari upplýsingar um vímuefni og áhrif þeirra sem er á heimasíðu Lýðheilsustöðvar:


