Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Styrkir úr Forvarnasjóði 2006

20.1.2006

Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði, skv. lögum nr 18/2003 – 96/1995 og reglugerð 361/1999. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og eru styrkir veittir á grundvelli verkefna. Veittir verða styrkir til almennra verkefna og rannsókna auk þess sem hluta Forvarnasjóðs verður varið til styrktar áfangaheimila.

Sérstaklega er auglýst eftir víðtækum forvarnaverkefnum til lengri tíma. Hér á heimasíðu Lýðheilsustöðvar, er að finna skrá yfir þær áherslur sem hafðar verða til hliðsjónar við mat og úthlutun styrkja.

Lýðheilsustöð áskilur sér rétt til að:

1. senda umsóknir til umfjöllunar fagaðila og óska eftir nánari upplýsingum um verkefni, framkvæmdaaðila og fjármögnun.

2. skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis.

Félög, samtök og opinberar stofnanir geta sótt um styrki. Einstaklingar geta að jafnaði einungis sótt um styrki til rannsóknaverkefna.

Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2006 og skal sótt um á sérstökum eyðublöðum sem eru hér á heimasíðu Lýðheilsustöðvar. Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir. Styrki, sem veittir eru á árinu, þarf að sækja fyrir 31.12.2006.

Lýðheilsustöð ráðstafar fé Forvarnasjóðs í samráði við heilbrigðisráðherra að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs.  Nánari upplýsingar fást í  sími 5 800 914, rafn@lydheilsustod.is

og hér á heimasíðunni og þar eru eyðublöð vegna umsókna.

Sjá nánar 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica