Þróun áfengismála á Norðurlöndunum
Dregið hefur úr neyslu sterks áfengis á Íslandi en hún hefur aukist í Danmörku, Noregi og Finnlandi en verið fremur stöðug í Svíþjóð fram til ársins 2004 en þá dró heldur úr neyslu sterks áfengis þar. Þá hefur neysla á víni aukist og eru Danir þar efstir á listanum, með að meðaltali 4,4 áfengislítra en Íslendingar neðstir, með 1,38 lítra. Fram kemur í skýrslunni að sala á víni hefur aukist um 62% á Íslandi frá árinu 1998. Aukningin var heldur minni á hinum norðurlöndunum. Athygli vekur að heldur hefur dregið úr neyslu á bjór á hinum Norðurlöndunum; í Danmörku úr 145 lítrum (1993) í 110 lítra (2004), Finnlandi úr 105 lítrum (1993) í 99 lítra (2004) og Svíþjóð úr 63 lítrum (1993) í 57 lítra (2004). Á sama tíma hefur neysla á bjór aukist á Íslandi þar sem neyslan á árunum 1993 til 2003 fór úr 30 lítrum í 67 lítra á mann, 15 ára og eldri.
