Leyfum ekki að börn fari eftirlitslaus í útilegu
barnið leiðist út í áfengis- eða vímuefnaneyslu. Þetta er vert að hafa í huga nú þegar verslunarmannahelgin er að ganga í garð. Á undanförnum árum hefur skilaboðum verið beint til foreldra og annarra fullorðinna að leyfa ekki að börn fari ein í útilegu – og minnt á að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum til 18 ára aldurs.Allir sem alið hafa upp ungling vita að á unglingsárunum skiptast á skin og skúrir í samskiptum foreldra og barns. Barnið vill nú vera sjálfstætt og finnst það gjarnan vita allt jafnvel betur en foreldrarnir! En það þarf að bíta á jaxlinn og muna að við berum ábyrgðina á velferð barnsins a.m.k. til 18 ára aldurs. Þess vegna er svo mikilvægt að vera með barninu/unglingnum sínum eins mikið og mögulegt er. En það þarf kannski að leggja eitthvað sérstakt á sig til að það takist, t.d. að taka þátt í því sem barninu finnst skemmtilegt. Það sem gerir útiskemmtun um verslunarmannahelgina svo spennandi er að þar er hópur jafnaldra, tónlist og önnur skemmtiatriði. Langi barninu mjög mikið að fara á slíka skemmtun eða, sem er afar algengt, „allir hinir eru að fara“ þá er kannski hægt að koma til móts við þessa ósk með því að öll fjölskyldan fer saman. Unglingurinn fær þá tækifæri og frelsi til að njóta skemmtunarinnar með félögunum en „öryggisnetið“ (foreldrarnir) eru til staðar. Einnig getur verið skemmtilegt fyrir alla að nokkrar fjölskyldur taki sig saman og fari í útilegu og leggi sig þá fram um að gera hana skemmtilega fyrir börnin og unglingana. Munum bara að þar, eins og alltaf, erum við fyrirmynd.

Útihátíðir og hætturnar
Umfram allt má ekki láta undan þrýstingnum og leyfa barninu að fara án eftirlits fullorðins í útilegu eða útihátíð – hætturnar leynast þar því miður víða. Á hverju ári, að lokinni verslunarmannahelgi, berast fréttir af ölvuðum unglingum, ofbeldi, vímuefnaneyslu og nauðgunum. Stöndum saman og gerum það sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir fréttir sem þessar. Foreldrar, tölum saman um hvert börnin okkar eru að fara, komumst að því hvort einhverjir foreldrar fara með, þekkjum hópinn sem barnið fer með, gefum skýr skilaboð um hug okkar til áfengisneyslu og neyslu annarra vímuefna.
(Lesa greinina Er unglinugrinn að neyta vímuefna?)
Tímalaus skilaboð
SAMAN hópurinn hefur með starfi sínu verið mjög ötull við að koma skilaboðum til foreldra um að vera með
börnum sínum og vita hvar þau eru á hverjum tíma og með hverjum. Þetta eru skilaboð sem eiga alltaf við og því eru nokkur þeirra rifjuð hér upp.
Foreldrar
Stöndum saman
Styðjum börnin okkar í því að afþakka áfengi og önnur vímuefni.
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvað barnið þitt ætlar að gera um helgina?
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvað barnið þitt ætlar að gera um verslunarmannahelgina?
Foreldrar
Sýnum ábyrgð
Áfengi má ekki selja, veita eða afhenda ungmennum undir 20 ára aldri.
Foreldrar
Sýnum ábyrgð
Reglur um útivistartíma barna og ungmenna eru í fullu gildi – líka á sumrin.
Foreldrar
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus partý.
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Gleðjumst með börnunum okkar í allt sumar.
Foreldrar
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus ferðalög.
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvar barnið þitt er í kvöld?
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvar barnið þitt er núna?

