Beint í leiðarkerfi vefsins.
Komin er upp íslensk vefsíða með uppskriftum fyrir óáfenga drykki, „oafengt.is“. Þar er talsvert safn uppskrifta þó enn séu þar helst hátíðardrykkir en aðrir flokkar munu fljótt bætast við.
Lesa meira
Áhrif niðurskurðar á framhaldsskólann og brottfall.
Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, miðvikudaginn 17. nóvember kl. 8:15 - 10:00. Skráning nauðsynleg, fyrir kl. 17 þriðjudaginn 16. nóv.
Þátttökugjald er 1.500 kr., sem þarf að staðgreiða. Morgunhressing innifalin.
Vika 43 í samstarfi við Náum áttum heldur morgunverðarfund í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 08:15 - 10.00 fimmtudaginn 28. október 2010.
Að loknu morgunþingi kl. 10 er fundarfólki boðið að sjá leikritið HVAÐ EF?
Að uppræta einelti
er þema næsta morgunverðarfundar Náum áttum hópsins, sem haldinn verður að Grand hóteli miðvikudagsmorguninn 13. október kl. 8:15-10. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn: lydheilsustod.is/skraning
Lesa meira
Morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 15. sept. n.k..
Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku.
Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning
Dagana 25-27 ágúst 2010 var haldin árleg norræn vinnustofa um forvarnir og heilsueflingu. Þátttakendur á vinnustofunni voru frá norrænum opinberum stofnunum sem vinna að málefninu. Þetta var í 26. skiptið sem slík vinnustofa er haldin og voru þátttakendur 27 frá öllum norðurlöndunum.
Lesa meiraÚthlutað hefur verið úr Forvarnasjóði fyrir árið 2010. Að þessu sinni er ríflega 71 milljón kr. úthlutað til 79 verkefna þar af er sérstök fjárveiting, 15 milljónir, sem ætluð er til sérstakra heilsueflingaverkefna. Alls bárust umsóknir um 129 verkefni.
Lesa meira
Á heimsþingi Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunarinnar, 20. maí s.l., var samþykkt ályktun um hnattræna stefnumörkun til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengisneyslu (Global Strategy to Reduce the Harmfule Use of Alcohol).
Lesa meira
Morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 19. maí n.k..
Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku.
Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning
Opnuð hefur verið vefsíðan frjáls.is sem ætluð er fagfólki, einkum á heilbrigðissviði, þar sem bent er á leiðir til að hvetja og styðja fólk til lífstílsbreytinga. Landlæknir, Geir Gunnlaugsson, opnaði síðuna formlega í dag í Heilsugæslunni í Mjódd að viðstöddu fjölmenni.
Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 24. febrúar og er yfirskriftin „Börn með ADHD - ekki gera ekki neitt“. Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku.
Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning
Lesa meira
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Umsóknarfrestur er til 5. mars og er einungis tekið við umsóknum sem skilað er rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar.