Sími : 5 800 900

Áfengi og vímuefni

Unglingar á Íslandi standa sig betur en jafnaldrar þeirra í Evrópu - 22.10.2009

Reglulega er kannað hér á landi hvernig unga fólkið okkar stendur sig í samanburði við jafnaldra sína t.d. í Evrópu. Ein slík rannsókn er ESPAD-rannsóknin á vímuefnaneyslu 15-16 ára unglinga í 35 Evrópulöndum. Margt ánægjulegt kemur fram í niðurstöðum nýjustu rannsóknarinnar (2007), hvað snertir unga fólkið á Íslandi, sem ástæða er til að halda á lofti. Niðurstöðurnar sýna m.a. að ungmenni á Íslandi eru almennt til mikillar fyrirmyndar og standa sig yfirleitt betur en flestir jafnaldrar þeirra í Evrópu.

Lesa meira
 

SAFT - 10 netheilræði - 1.10.2009

Örugg netnotkun barna er mjög mikilvæg og til að aðstoða fjölskyldur í þeim efnum hefur SAFT gefið út fræðsluefni með 10 netheilræðum sem dreift verður til allra nemenda í 1.-4. bekk grunnskóla. Lesa meira
 

Fækkar í hópi þeirra sem aldrei drekka áfengi - einkum á meðal kvenna - 4.9.2009

Þegar skoðuð er þróun áfengisdrykkju á Íslandi síðustu áratugi kemur í ljós umtalsverð aukning í sölu áfengislítra en einnig að breyting hefur orðið á drykkjumynstri fólks. Jafnframt hefur orðið sú breyting að fækkað hefur verulega í hópi þeirra sem aldrei neyta áfengis, einkum meðal kvenna. Lesa meira
 

Úthlutun úr Forvarnasjóði og Styrktarsjóði ungs fólks án atvinnu - 15.6.2009

Úthlutun úr Forvarnasjóði fór fram 15. júní í Austurbæjarbíói – Húsi unga fólksins. Það var heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem úthlutaði styrkjum úr sjóðnum til 45 mismunandi verkefna. Einnig fór fram fyrsta úthlutun úr Styrktarsjóði Ungs fólks án atvinnu sumarið 2009. Lesa meira
 

Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar? - Næsti Náum áttum fundur - 24.5.2009

naum_attumNæsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 27. maí og ber yfirskriftina „Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar?“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Sjálfboðaliðastarf og gildi þess fyrir forvarnastarf. Næsti Náum áttum fundur. - 17.4.2009

Náum áttum - dagskrá aprílfundarNæsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 22. apríl og ber yfirskriftina „Sjálfboðaliðastarf og gildi þess fyrir forvarnarstarf“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Velferð barna - ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga. Næsti Náum áttum fundur - 12.3.2009

Náum áttum, mars 2009Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. mars og ber yfirskriftina „Velferð barna - ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

ÁRNAMESSA í STYKKISHÓLMI - laugardaginn 14. mars 2009 - 24.2.2009

Lýðheilsustöð boðar til málþings helgað Árna Helgasyni um stöðu áfengismála á Íslandi, haldið í grunnskóla Stykkishólms, Borgarbraut 6, kl. 12-16:30.

Málþing og rútur í boði Lýðheilsustöðvar (ókeypis fyrir þátttakendur).
MINNT ER Á AÐ RÚTURNAR FARA KL. 9 STUNDVÍSLEGA FRÁ BSÍ OG ERU UM 10 MÍN. SÍÐAR VIÐ N1 BENSÍNSTÖÐINA Á ÁRTÚNSHÖFÐA.

Árnamessa - Þurfi að koma skilaboðum áleiðis má hringja til Bryndísar, s. 8 400 903.

Skákmót - hringja má til Helga, s. 664 8320.

Lesa meira
 

Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkis. Næsti „Náum áttum“ -fundur - 13.2.2009

Náum áttum, auglýsingNæsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. febrúar og ber yfirskriftina „Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkis“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Forvarnasjóður - auglýst er eftir umsóknum um styrki - 29.1.2009

Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar og er einungis tekið við umsóknum sem skilað er á þar til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar. Lesa meira
 

Stöndum við vörð um velferð barna? - næsti „Náum áttum“ -fundur - 26.1.2009

Náum áttum - dagskrá janúar 2009Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 28. janúar og er yfirskriftin „Stöndum við vörð um velferð barna?“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni um áhrif áfengisneyslu - 22.1.2009

Hvað veistu um áfengi? Fræðslubæklingur fyrir ungt fólk. Smella á mynd til að skoða bæklinginn. Lýðheilsustöð hefur gefið út endurskoðaða útgáfu af fræðslubæklingnum Hvað veistu um áfengi? Um er að ræða útgáfu ætlaða ungu fólki og miðast efnistök og útlit við lesendahópinn. Lesa meira
 

Áfram örugg netnotkun - 14.1.2009

SAFT. Smellið á merkið til að opna vefsíðu SAFT. Lýðheilsustöð er nú formlegur samstarfsaðili SAFT-verkefnisins um örugga netnotkun, sem Heimili og Skóli stýrir. Nýlega var undirritaður samningur til næstu tveggja ára um að Evrópusambandið styðji verkefnið áfram. Auk Lýðheilsustöðvar, sem mun m.a. vinna að ýmsum fræðslumálum og ráðgjöf, er Capacent Gallup nú formlegur aðili að verkefninu en á þeirra vegum verður gerð viðamikil könnun á net- og nýmiðlanotkun Íslendinga. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica