Sími : 5 800 900

Áfengi og vímuefni

Forvarnir á Íslandi - hvert stefnir? - 26.11.2007

Merki Náum áttum samstarfshópsinsHvert stefnum við í forvarnamálum á Íslandi er umræðuefni morgunverðarfundar Náum áttum samstarfshópsins sem fram fer á Grand-hóteli miðvikudaginn 28. nóvember. Fjallað verður um hvað liggi að til grundvallar stefnumótun ríkistjórnarinnar í forvarnamálum, aðgerðaráætlun í málefnum barna og unglinga og forvarnastarf almannasamtaka. Lesa meira
 

Lýðheilsustöð tekur undir viðvaranir lögreglunnar - 23.10.2007

e-taflan, veggspjald, smella á mynd til að stækkaLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað við auknu framboði af e-töflum. Sérstakur áhættuhópur hvað e-töflurnar varðar er ungt fólk og þar sem um er að ræða mjög hættulegt efni þykir lögreglu ástæða til þessara varúðarráðstafana. Lýðheilsustöð tekur undir varnaðarorð lögreglunnar. Lesa meira
 

Áhrif áfengisauglýsinga á neyslu ungs fólks - 23.10.2007

Því meira sem ungt fólk sér af áfengisauglýsingum því meiri líkur eru á að það drekki áfengi. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknaverkefnisins ELSA og ennfremur að reglur sem gilda um áfengisauglýsingar í Evrópu dugi ekki til að vernda ungt fólk gegn auglýsingunum. Lesa meira
 

Náum áttum - morgunverðarfundur - foreldrarhæfni - 25.9.2007

Foreldrahæfni - hvað þarf til? er yfirskrift morgunverðarfundar Náum áttum-hópsins, miðvikudaginn 26. september á Grand hóteli. Lesa meira
 

Áfengisverð og aðgengi að áfengi hefur áhrif á áfengisneyslu - 20.7.2007

Í umræðu um forvarnir og áfengismál ber oft á þeim misskilningi að forvarnir snúist eingöngu um fræðslu um skaðsemi áfengis og ábyrgt uppeldi barna. Öflugt forvarnarstarf felst ekki síður í réttum stjórnvalds-aðgerðum. Niðurstöður fjölda rannsókna hafa sýnt að aðgengi og verð á áfengi eru lykilþættir sem ákvarða heildar áfengisneyslu hverjar þjóðar.

Lesa meira
 

Bæjar- og útihátíðir - ábyrgð skipuleggjenda og foreldra - 11.7.2007

Unglingar á Ingólfstorgi. Smella á myndina til að stækka. Með hverju árinu fjölgar þeim stöðum á landinu þar sem á sumrin er boðið upp á bæjar- og/eða útihátíð, landsmönnum yfirleitt til ánægju og yndisauka. Lýðheilsustöð vill þó vekja athygli foreldra og skipuleggjenda þessara hátíða á þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir hvað varðar þátttöku barna og ungmenna í hátíðahöldunum. Lesa meira
 

Skemmtum okkur vel í sumar! - 14.6.2007

ungl_skil

Áfengi og áfengisneysla er hluti af því samfélagi sem við búum við. Neyslan fer reyndar vaxandi og salan eykst á sumrin. Í sumar munu birtast nýjar auglýsingar Lýðheilsustöðvar sem minna landsmenn á að áfengisneyslunni fylgir ábyrgð.

Lesa meira
 

Ábyrgð - öllum í hag - 6.6.2007

Lýðheilsustöð stendur að samstarfsverkefni sem kallast Ábyrgð – öllum í hag. Um er að ræða þjálfunarverkefni fyrir starfsfólk skemmtistaða og veitingahúsa með það að markmiði að draga út slysum, ofbeldisverkum og ofneyslu áfengis í tengslum við skemmtanalífið. Farið er að starfa samkvæmt áherslum verkefnisins í Reykjanesbæ. Lesa meira
 

Unglingar á Íslandi standa sig mjög vel - 2.5.2007

Stækka mynd af Önnu Elísabetu flytja erindiÁ kynningarfundi Lýðheilsustöðvar í dag voru kynntar niðurstöður ESPAD-rannsóknarinnar 2007 og formleg úthlutun úr Forvarnasjóði fór fram.
Samkvæmt niðurstöðum ESPAD standa unglingar á Íslandi sig mjög vel hvað varðar reykingar, neyslu áfengis og ólöglegra vímuefna. Sem dæmi má nefna að um 90% unglinga í 10. bekk hefur aldrei reykt hass. Góðan árangur má þakka þeim sjálfum, foreldrum þeirra og ýmsum samfélagsþáttum. En ekki má slaka á, sífellt bætast nýir við í unglingahópinn á Íslandi, og forvarnastarf þarf því stöðugt að vera í gangi. Þar kemur m.a. til það ágæta starf sem Forvarnasjóður styrkir. Lesa meira
 

SAMAN-hópurinn fær Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 - 24.4.2007

lydheilsuverdlaun07_2Íslensku lýðheilsuverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn, í morgun, 24. apríl 2007, og voru verðlaunin afhent af Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Ákveðið var að veita SAMAN-hópnum Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra. Afhending verðlaunanna fór fram í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Lesa meira
 

Miðlun án landamæra - börn og óbein markaðssetning - 12.3.2007

Samstarfshópurinn NÁUM ÁTTUM heldur morgunverðarfund um börn og óbeina markaðssetningu á Grand hóteli, þriðjudaginn 13. mars kl. 8:15-10:00. Lesa meira
 

Hollendingar vilja breyta lögum um áfengisauglýsingar - 8.2.2007

Hollenska ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp þess efnis að banna áfengisauglýsingar í ljósvakamiðlum fram til kl 21:00. Þær reglur um birtingu áfengisauglýsinga þykja ekki vernda börn og ungmenni nægilega. Lesa meira
 

Forvarnasjóður - umsóknir um styrki skilist inn fyrir 1. febrúar - 30.1.2007

Minnt er á að síðasti dagur til að skila inn umsóknum um styrki úr forvarnasjóði er 31. janúar. Einungis er tekið við umsóknum sem skilað er á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar. Lesa meira
 

Styrkir úr Forvarnasjóði 2007 - 8.1.2007

Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og eru styrkir veittir til verkefna eða afmarkaðra rannsókna. Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum á mismunandi skólastigum eða ungu fólki utan skóla. Þá er auglýst sérstaklega eftir verkefnum sem taka til félagslegrar stöðu ungs fólks og ungs fólks af erlendum uppruna.

Lesa meira

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica