Sími : 5 800 900

Áfengi og vímuefni

Hvatt til neyslu óáfengra drykkja - 28.12.2006

Um hátíðarnar og þá ekki síst um áramótin finnst mörgum gaman að skála í fallegum drykk í tilefni tímamótanna. Brautin, bindindisfélag ökumanna í samstarfi við ýmsa aðila, stendur nú, í þriðja skipti fyrir hvatningu til neyslu óáfengra drykkja. Að þessu sinni var Jói Fel. fenginn til að búa til Hátíðardrykk 2007. Lesa meira
 

Flott án fíknar - kynning á verkefninu - 15.11.2006

Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið að fylgja eftir Forvarnardeginum sem haldinn var 28. september síðastliðinn að frumkvæði forseta Íslands með forvarnaverkefninu Flott án fíknar en UMFÍ fékk styrk úr forvarnasjóði vegna þessa verkefnis. Kynning verður á verkefninu í Vetrargarðinum í Smárlind 17. nóvember kl. 16. Lesa meira
 

E-taflan er alltaf hættuleg - 6.11.2006

Ung kona lést um helgina eftir að hafa tekið inn E-töflu og tveir ungir menn voru fluttir alvarlega veikir á Smella á mynd til að stækkasjúkrahús eftir slíka neyslu. Neysla E-töflu er alltaf hættuleg og vegna atburða helgarinnar hefur Lögreglan Í Reykjavík verið að vara sérstaklega við notkun E-töflunnar - og undir þau varnaðarorð tekur Lýðheilsustöð. Lesa meira
 

Vímuvarnavika 2006 - 16.-20. október - 17.10.2006

Formleg opnun Vímuvarnaviku 2006 fer fram í húsakynnum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, þriðjudaginn 17. október kl. 14:00. Lesa meira
 

Veitum frelsi - en sýnum ábyrgð! - 2.8.2006

Engin ungmenni yngri en 18 ára ættu að fara ein og eftirlitslaus á útihátíð um Stækka myndverslunarmannahelgina. Í flestum tilfellum gengur allt vel á slíkum hátíðum en eins og reynslan hefur sýnt hafa því miður komið upp tilvik þar sem ungt fólk hefur lent í vanda – sem væntanlega hefði mátt koma í veg fyrir hefðu foreldrar eða aðrir fullorðnir verið með í för. Lesa meira
 

Áfengisauglýsingar beinast jafnvel að ungum börnum - 31.7.2006

Smella á mynd til að stækkaÞegar vara er auglýst þá er tilgangurinn vanalega sá að fá fólk til að muna eftir og langa í vöruna - sem leiðir svo gjarnan til þess að varan er keypt. Auglýsingar hafa sterk áhrif á börn og ungt fólk og því er auglýsingum gjarnan beint að þeim. Þetta gildir t.d. mjög um áfengisauglýsingar, þar sem áfengi og ,,skemmtilegar” stundir er gjarnan sýnt saman. Bannað er með lögum að auglýsa áfengi á Íslandi en ótal dæmi sýna hvernig farið er í kringum þessi lög – nægir að nefna ýmsar verslunarmannahelgarauglýsingar nú í ár. Og nú er meira að segja svo langt gengið að hægt er að kaupa barnaleikföng með áfengisauglýsingum. Lesa meira
 

Frá ráðstefnunni „Breytingar á áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga“ sem haldin var á Akureyri 28. apríl 2006 - 16.5.2006

Á rástefnunni sem var haldin á vegum Akureyrarbæjar, Háskólans á Akureyri, Fjórðungsskjúkrahússins á Akureyri og Lýðheilsustöðvar kom fram fjöldi fyrirlesara og er nú hægt að nálgast fyrirlestraglærur þeirra hér á heimasíðu Lýðheilsustöðvar. Lesa meira
 

Talnaefni og skýrslur - 9.5.2006

Hérna er hægt að nálgast ýmiss konar talnaefni og skýrslur sem tengjast áfengis- og vímuefnrannsóknum og umfjöllunum um þær. Einnig um sértæk viðfangsefni sem flokkast ekki undir aðra liði hér á vinstri hönd. Sumar rannsóknir spanna mörg svið og geta því verið á fleiri en einum stað.

Lesa meira
 

Ungt fólk og skaðleg neysla áfengis - 31.3.2006

Smella á mynd til að stækkaLandsmenn vita að áfengiskaupaaldur á Íslandi miðast við 20 ár. Samt sem áður sýnir reynslan að yngra fólk – og oft mun yngra – er að neyta áfengis og það jafnvel í mjög miklu og skaðlegu magni. Þetta sýnir líka að aðgengi unga fólksins að áfengi er tiltölulega auðvelt og að eldra fólk er að kaupa eða útvega ungu fólki, sem ekki hefur aldur til, áfengi. Því lengur sem ungt fólk dregur það að hefja áfengisneyslu því betra fyrir heilsu þess og vellíðan. Lesa meira
 

Staðreyndir um vímuefni - 31.1.2006

Höldum heilanum - barmmerki, bleiktFræðslubæklingur Lýðheilsustöðvar um skaðsemi vímuefnanotkunar, sem einkum er ætlaður ungu fólki á framhaldsskólaaldri. Bæklingurinn nefnist Staðreyndir um vímuefni, og er hluti af verkefni sem kallast ,,Höldum heilanum heilum”. Lesa meira
 

Styrkir úr Forvarnasjóði 2006 - 20.1.2006

Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði, skv. lögum nr 18/2003 – 96/1995 og reglugerð 361/1999. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og eru styrkir veittir á grundvelli verkefna. Veittir verða styrkir til almennra verkefna og rannsókna auk þess sem hluta Forvarnasjóðs verður varið til styrktar áfangaheimila. Lesa meira
 

Tölvufíkn ungs fólks - 16.1.2006

Vakin er athygli á fræðslufundi um tölvufíkn ungs fólks sem Náum áttum samstarfshópurinn stendur fyrir miðvikudagsmorguninn 18. janúar kl. 8.30-10. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn. Lesa meira
 

Áfengisauglýsingar hafa áhrif á unglingadrykkju - 4.1.2006

Samkvæmt niðurstöðum langtímarannsóknar í Bandaríkjunum á árabilinu 1999-2001 hafa áfengisauglýsingar áhrif á áfengisdrykkju ungs fólks. Niðurstöðurnar sýna að bein tengsl eru á milli drykkju og framboðs auglýsinga þannig að sá hópur ungs fólks sem sá meira af áfengisauglýsingum drakk meira en sá hópur sem sá minna af þeim. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica