Skuggahliðar áfengisneyslu
Um er að ræða þrjár auglýsingar þar sem skilaboðin í einni eru að ofbeldi er oftast tengt neyslu áfengis og/eða annarra vímuefna. Í annarri að áfengi er alltaf áfengi, sama hvort það kemur í formi léttvíns, bjórs eða sterkra drykkja. Og í þeirri þriðju eru verðandi foreldrar hvattir til að drekka ekki áfengi á meðgöngunni; að áhrif áfengisins á ófætt barnið séu mun meiri en á móðurina.
Við gerð auglýsinganna fékk Lýðheilsustöð ENNEMM auglýsingastofu í lið með sér og um kvikmyndagerð sá Pegasus. Ætlunin er að sýna auglýsingarnar á þeim tímamótum þegar búast má við meiri áfengisdrykkju í samfélaginu en ella og er auglýsingunum ætlað að vera liður í að hvetja til umhugsunar um skaðleg áhrif áfengisneyslu og stuðla þar með að því að draga úr skaðlegum áhrifum áfengis.

Hér er hægt að skoða auglýsingarnar fjórar í vefútgáfu:
