Sími : 5 800 900

Áfengi og vímuefni

Skuggahliðar áfengisneyslu - 20.12.2005

Þessa dagana er verið að sýna á sjónvarpsstöðvunum nýjar auglýsingar á vegum Lýðheilsustöðvar sem eiga það sameiginlegt að sýna skuggahliðar áfengisneyslu. Lesa meira
 

Kynntar niðurstöður könnunar á neysluvenjum framhaldsskólanema - 15.11.2005

Lýðheilsustöð og Rannsóknir & greining boðuðu til sameiginlegs kynningarfundar þar sem kynntarvoru niðurstöður kannana á notkun tóbaks, áfengis og annarra vímuefna meðal framhaldsskólanema. Lesa meira
 

Fundur með Robin Room 3. nóvember - 2.11.2005

Á vegum Lýðheilsustöðvar kom hingað til lands prófessor Robin Room og hélt hann erindi á opnum fundi í bíósal Hótel Loftleiða fimmtudaginn 3. nóvember. Lesa meira
 

Er áfengi hollt fyrir ungt fólk? - 18.10.2005

Samstarfshópurinn Náum áttum, í samráði við Samstarfsráð um forvarnir, heldur fræðslufund um skaðsemi áfengis fyrir ungt fólk. Fundurinn er liður í Vímuvarnaviku 2005 þar sem yfirskriftin er ,,Upphafsaldur áfengisneyslu: Hvað er í húfi”. Á fundinum verður fjallað um að andleg og líkamleg áhrif áfengis á börn og ungt fólk.
Fundurinn er miðvikudaginn 19. október kl. 8:15-11:30 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2.

Lesa meira

 

Þróun áfengismála á Norðurlöndunum - 11.8.2005

Í nýútkomnu hefti NAT (Nordisk Alkohol- & Narkotikatidskrift, vol.22.2005) er m.a. samantekt sænsku Lýðheilsustöðvarinnar yfir þróun áfengismála á Norðurlöndunum á árunum1993-2004. Þar kemur m.a. fram að verð á áfengi hefur farið lækkandi á Norðurlöndunum og einnig að meira fé er varið til áfengiskaupa. Lesa meira
 

Leyfum ekki að börn fari eftirlitslaus í útilegu - 27.7.2005

Góð samskipti foreldra og barna og góðar samverustundir er besta forvörnin hvað varðar hættuna á að unglingur, 18 ára ábyrgðbarnið leiðist út í áfengis- eða vímuefnaneyslu. Þetta er vert að hafa í huga nú þegar verslunarmannahelgin er að ganga í garð. Á undanförnum árum hefur skilaboðum verið beint til foreldra og annarra fullorðinna að leyfa ekki að börn fari ein í útilegu – og minnt á að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum til 18 ára aldurs. Lesa meira
 

Sumarið og fjölskyldan - 2.6.2005

SAMANhópurinn hefur nú starfað hátt á sjötta ár. Í dag eiga 24 stofnanir og félagasamtök sem láta sig varða velferð barna og ungmenna fulltrúa í hópnum. Það hefur verið einn af föstum þáttum í starfi hópsins að vekja athygli á því að oft er sumarið sá tími sem ungt fólk byrjar að nota tóbak og/eða vímuefni. Lesa meira
 

Áfengi-aðgengi-áhrif - 7.5.2005

Á nýafstöðnum fundi Evrópudeildar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) var lýst yfir áhyggjum vegna aukinnar áfengisneyslu. Fram kom að áfengisneysla í heiminum er mest í Evrópu og að dauðsföllum, sem rekja má til áfengis, fjölgaði um 15% á milli áranna 2000 og 2002. Áætlað er að árið 2002 megi rekja orsök 1.8 milljón dauðsfalla (þar af 600.000 í Evrópu einni) til áfengisneyslu eða 3.2% af dauðsföllum í heiminum [1]. Lesa meira
 

Nemendur sem ekki neyta áfengis fengu hærri einkunnir - 28.2.2005

Nemendur Verzlunarskólans sem aldrei eða mjög sjaldan drekka áfengi og þeir sem ekki reykja voru almennt með hærri meðaleinkunn á jólaprófunum. Þetta er niðurstaða könnunar sem birt er í nýútkomnu Verzlunarskólablaði. Könnunin var gerð 11. janúar sl. og lögð fyrir alla nemendur skólans. Af um ellefu hundruð nemendum skólans svöruðu 976, sem er um 90% svarhlutfall. Lesa meira
 

Umsóknarfrestur um styrki úr Forvarnasjóði er til 28. febrúar - 24.2.2005

Minnt er á að frestur til að sækja um styrki úr Forvarnasjóði rennur út 28. febrúar. Lesa meira
 

Auglýst hefur verið eftir styrkjum úr Forvarnasjóði - 31.1.2005

Einu sinni á ári er auglýst eftir styrkjum úr Forvarnasjóði og eftir að allar umsóknir hafa verið yfirfarnar og metnar hefur vanalega verið úthlutað úr sjóðnum að vori. Lesa meira
 

Fræðslubæklingar um áfengi - 24.1.2005

Nýkomnir eru út á vegum Lýðheilsustöðvar tveir fræðslubæklingar um áfengi undir heitinu: Hvað veistu um áfengi? Annar bæklingurinn er ætlaður fullorðnum en hinn ungu fólki.

Lesa meira

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica