Með vorinu eykst fikt með eldspýtur
Nú fer sá tími í hönd að börn fara almennt að vera lengur úti og þessum tíma kemur oft upp fikt með eldfæri. Börn fara að brenna sinu eða kveikja í einhverju öðru og því þurfa foreldrar og forráðamenn að vera sérstaklega á varðbergi og brýna fyrir börnunum hættuna af fikti með eld.
Í Morgunblaðinu var fyrir skömmu greint frá bílbruna sem varð úti á landi. Tildrög bílbrunans voru þau að ungir drengir voru að leika sér með eldspýtur í bílnum sem leiddi til þess að það kviknaði í honum. Þarna hefði getað farið mjög illa, t.d. ef eldurinn hefði náð að breiðast hratt út og þeir verið búnir að læsa hurðunum. Við óvænta atburði bregðast börn ekki alltaf rétt við, oftast vegna skorts á þroska og reynslu en stundum vegna sektarkenndar.
Það eru því tilmæli til foreldra og forráðmanna barna að brýna fyrir þeim að vera ekki að leika sér með eld.
Herdís L. Storgaard
verkefnastjóri barnaslysavarna,
Árvekni, Lýðheilsustöð
