Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Barn stingur sig á sprautunál á skólalóð

24.2.2005

Fyrir skömmu stakk barn sig á sprautunál sem það fann á skólalóð á höfuðborgarsvæðinu. Börn höfðu orðið vör við sprautuna og ætluðu að farga henni, með fyrrgreindum afleiðingum. Farið var með barnið strax til læknis þar sem það fékk viðeigandi meðferð.

Að sögn Haraldar Briem, sóttvarnalæknis hjá Landlæknisembættinu, eru hverfandi líkur á að hægt sé að smitast af HIV, eða öðrum hættulegum sjúkdómum, af nál sem legið hefur utan dyra.Sprautunál

Mikilvægt er þó að foreldrar séu á varðbergi gagnvart notuðum sprautum og nálum en þær má því miður oft finna á leiksvæðum barna. Stjórnendur leik- og grunnskóla verða því að fela stafsmönnum sínum að fara reglulega í eftirlitsferðir um lóðina áður en börnin fara út á leiksvæðið. Foreldrar þurfa að huga að þessu á opnum leiksvæðum því þar getur liðið langt á milli heimsókna umsjónaraðila lóðanna. Best er að fara yfir svæðið og athuga hvort einhverjir hættulegur hlutir séu þar áður en börnin fá að fara þangað ein. Mikilvægt er að láta viðkomandi aðila vita ef sprauta finnst.

Finni barn eða fullorðin nál og sprautu og stingur sig er mikilvægt að fylgja leiðbeiningum Landlæknis um stunguóhöpp.

 

Herdís L. Storgaard

herdis@lydheilsustod.is

verkefnasjóri barnaslysavarna



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica