Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Pössum börnin betur

Fræðslumyndir fyrir foreldra

16.2.2005

Velferðasjóður barna á Íslandi lét gera tíu upplýsinga- og fræðslumyndir í því skyni að draga úr slysum barna. Sjóðurinn fékk Lýðheilsustöð og Tryggingamiðstöðina til samstarfs um verkefnið og er við það miðað að vekja athygli foreldra og forráðamanna barna, sem eru yngri en fjögurra ára, á þeim slysahættum sem leynast víða á heimilum og í næsta umhverfi barna.

Skoða myndböndin:

Lífslíkur ungbarna á Íslandi eru mestar í heiminum og má rekja þetta til góðrar mæðra- og ungbarnaverndar. Þrátt fyrir þann mikla árangur sem þjóðin hefur náð á þessu sviði er ekki sömu sögu að segja þegar kemur að slysum ungra barna í heimahúsum. Á þessu sviði stöndum við nágrannaþjóðum okkar að baki og þurfum að gera enn betur í slysavörnun barna.

Kynningarmyndunum er ætlað að minna forráðamenn á nokkur atriði sem oftast valda slysum, s.s. eitranir, bruna, fall, köfnun og drukknun, og vonandi verða myndirnar þannig liður í að forða börnum frá algengum slysagildrum. Á árinu 2003 var leitað til læknis vegna slysa um 1400 barna og höfðu flest slasast í heimahúsum.

Sýningum á kynningarmyndunum verður fylgt eftir m.a. með fræðslu í fjölmiðlum og blaðagreinum. Fræðslumyndirnar Pössum börnin betur verða sýndar á sjónvarpsstöðvunum næstu vikur. Ýmsir þjóðkunnir einstaklingar koma fram í myndunum, feður, mæður, afar og ömmur.

Átakið var kynnt fyrir blaða- og fréttamönnum í Barnaspítala Hringsins, miðvikudaginn 16. febrúar.

Sé óskað ánari upplýsingar má hafa samband við: Ingibjörgu Pálmadóttur, síma 8640330 og Herdísi L. Storgaard, síma 8400906.

Árvekni-Samúel-afdrif Árvekni-Samúel-aldur Árvekni-Samúel-áverkar
 
 Árvekni-Samúel-frítímaslys  Árvekni-Samúel-frítímaslys-staður  Árvekni-Samúel-Orsakir  
       


 

 

Samúel dansar
Samúel kynntur fyrir blaðamönnum

Frá blaðamannafundinum þar sem Samúel og átakið Pössum börnin betur var kynnt.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica