Skotheld áramót
Ekki má svo gleyma dýrunum þegar verið er með skotelda. Dýr eru afar viðkvæm fyrir hávaðanum og dæmi eru um að hross hafi fælst og skaðað sig og aðra.
Leyfileg notkun og sala
Í reglugerð 952/2003 um skotelda segir að ekki megi selja skotelda nema á tímabilinu 28.desember til 6. janúar ár hvert, að báðum dögum meðtöldum. Sama gildir um notkun skotelda.
Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að verið sé að skjóta upp skoteldum löngu eftir að leyfilegri sölu og notkun á að vera lokið. Þetta skapar ekki aðeins hættu heldur jafnframt mikil óþægindi. Í reglugerðinni kemur einnig fram að öll sala skotelda til barna undir 12 ára er óheimil. Börn á aldrinum 12-16 ára mega kaupa skotelda sem eru með litlu magni af púðri en foreldrar barna á þessum aldri þurfa að vera sérstaklega á varðbergi því það eru þau sem eru einmitt mest að fikta með skotelda. Mikilvægt er að setja reglur á heimilinu um meðferð skotelda. Til að koma í veg fyrir slys er góð hugmynd að meðferð skotelda sé eitt af því sem fjölskyldan gerir saman. Þannig má slá a.m.k. tvær flugur í einu höggi: Foreldrar og börn eiga góðar stundir saman og foreldrar geta kennt börnum sínum að umgangast skotelda með varúð.
- Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja skoteldum
- Breytið ekki eiginleikum skotelda
- Geymið skotelda á öruggum stað
- Gerið ráðstafanir vegna gæludýra - þau eru viðkvæm fyrir hávaða
- Veljið ábyrgan aðila til að stjórna aðgerðum á skotstað
Hvað þarf
- Öryggisgleraugu og hanska
- Mikilvægt er að vera ekki í eldfimum fatnaði
- Hólk til að skorða flugelda
- Slétt og stöðugt undirlag á opnu svæði fyrir skotkökur/gos o.þ.h.
- Sjúkrakassa til taks
Þegar skotið er upp
- Skjótið ekki í skoteldum nærri húsum og gætið þess að loka gluggum og hurðum
- Kveikið í skoteldum með útréttri hendi - bogrið ekki yfir þeim
- Hafið sérstakar gætur á börnum
- Víkið strax frá eftir að kveikt hefur verið í skoteldum - haldið öðrum í fjarlægð
- Reynið ekki að kveikja aftur í skoteldum sem áður hefur verið kveikt í
- Skjótið ekki upp skoteldum við blákesti
- Gerið viðeigandi ráðstafanir vegna mögulegrar eldhættu af völdum skotelda
Stjörnuljós og handblys
- Látið börn aldrei meðhöndla stjörnuljós án eftirlits fullorðinna
- Látið börn aðeins hafa eitt stjörnuljós í einu
- Haldið stjörnuljósi og handblysi frá líkama
- Handblys eru varasöm börnum og unglingum
Að lokinni sýningu
- Fjarlægið notaða skotelda með varúð
- Farið aftur yfir svæðið daginn eftir og fjarlægið skoteldaleifar
Með því að fylgja þessum ábendingum um meðferð skotelda, stuðlið þið að slysalausum áramótum. Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur viðbrögð við bruna hjá Rauða krossi Íslands. Munið símanúmer Neyðarlínunnar 1-1-2.
Með bestu óskum um gleðileg og slysalaus áramót
Herdís L. Storgaard
verkefnastjóri
Árvekni-slysavarnir barna og unglinga

