Slysum á börnum fækkaði meðan á kennaraverkfalli stóð
Á meðan á verkfallinu stóð bárust Slysaskrá Íslands upplýsingar um 682 ó ofangreindum aldurshópum samanborið við 848 slys á sama tíma árið áður. Skráning skólaslysa fækkaði um tæp 80% á milli ára á meðan slys í öðrum flokkum stóðu nokkurn vegin í stað.
Hægt er að skoða niðurstöðurnar nánar hér.
Það er gott til þess að vita að frítímaslysum inni og úti hafi ekki fjölgað að sama skapi miðað við að talasvert mörg börn voru án eftirlits meðan á verkfallinu stóð.
Það vakti hinsvegar athygli að mikið umfjöllun var í fjölmiðlum um öryggi barna og að það þyrfti að gæta barnanna. Þetta ber vott um að hugsunarhátturinn í þjóðfélaginu er að breytast til hins betra. Áður hafa verið löng verkföll kennara en umræða um öryggi barna var ekki jafn áberandi og nú.
Frá þessu er greint á veffréttum Morgunblaðsins.
Herdís L. Storgaard
Verkefnastjóri
Árvekni slysavarnir barna og unglinga.
