Ávarp formanns stjórnar Árvekni
Velkomin á nýja heimasíðu Árvekni!
Árvekni, átaksverkefni um slysavarnir barna og unglinga, starfar samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá í október 1997. Stjórn verkefnisins skipa fulltrúar sex ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Verkefnið er í umsjá heilbrigðisráðuneytis og er fulltrúi þess formaður stjórnar. Herdís L. Storgaard, hjúkrunarfræðingur, hefur frá árinu 1998 verið framkvæmdastjóri verkefnisins. Auk hennar starfar Elva Möller, hjúkrunarfræðingur, á skrifstofu Árvekni.
Í upphafi var verkefninu ætlað að starfa í 3 ár, en komið hefur í ljós mikil þörf fyrir starfsemi af þessu tagi og þess vegna hefur starfstíminn verið framlengdur. Auk þess að sinna margs konar verkefnum og fara yfir lög og reglugerðir sem lúta að slysavörnum og öryggismálum barna og unglinga, hefur á skrifstofu Árvekni verið tekið við ábendingum frá fólki um slysagildrur og veitt ráðgjöf um slysavarnir, bæði til almennings og opinberra aðila. Mjög hefur færst í vöxt að aðilar sem starfa að skipulagsmálum, hönnun og framleiðslu af ýmsu tagi hafi leitað til skrifstofu Árvekni til að fá leiðbeiningar og ábendingar um slysavarnir og öryggismál.
Til að Árvekni geti betur sinnt hlutverki sínu var fyrr á þessu ári ákveðið að setja upp heimasíðu verkefnisins. Hefur Elva haft þá vinnu með höndum í samvinnu við Herdísi. Ætlunin er að uppfæra síðuna reglulega og smám saman gera hana ítarlegri þannig að fólk geti á henni fengið nákvæmar og aðgengilegar upplýsingar í þessum málaflokki, annað hvort á síðunni sjálfri eða með tenglum, bæði innlendum og erlendum. Hægt verður að prenta fræðsluefni og gátlista af heimasíðunni auk margra annarra möguleika sem þegar eru komnir eða verið er að þróa. Ef fólki finnst eitthvað skorta eða mega betur fara eru ábendingar þar að lútandi vel þegnar.
Ólafur Gísli Jónsson,
formaður stjórnar Árvekni.
