Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Alvarleg slys vegna kengúruprika

22.8.2002

Tvær tilkynningar um áverka á höfði hafa borist Árvekni í sumar vegna kengúruprika.

Í báðum tilfellum voru börnin ekki með hjálm en mikilvægt er að nota t.d. reiðhjólahjálm þegar hoppað er um á prikinu.

Í samtali við foreldra barnanna kom það skýrt fram að börnin hefðu slasast illa á höfði þegar þau misstu jafnvægið á prikinu. Þar sem að börnin þurfa að halda sér fast þegar hoppað er þá gefst þeim ekki svigrúm til að setja hendurnar fyrir sig ef þau detta og lenda því illa á höfðinu.

Gerðar hafa verið athugasemdir um að prikið sé stór hættulegt en í samtali við Guðjón Guðmundsson hjá Vífilfelli uppfyllir prikið þær kröfur sem gerðar eru til slíks leikfangs og lét fyrirtækið einmitt kanna það hjá markaðsgæsluaðilum hér á landi áður en leikurinn var auglýstur. Einnig kom það fram í samtali við Guðjón að fyrirtækið hefði gert ýmsar aðrar öryggisráðstafanir og má þar nefna að með prikinu fylgja leiðbeiningar um notkun þess á íslensku og þar er kvatt til að þeir sem það noti séu með hjálm.  Í auglýsingaherferð tengdum leik fyrirtækisins vakti það athygli að í auglýsingunni var sá sem var að nota prikið með hjálm.

Það ber að fagna þessu framtaki fyrirtækisins um leið og við hjá Árvekni viljum benda foreldrum á að hafa gætur á börnum sínum þegar þau nota kengúruprikið og sjá til þess að þau noti hjálm og úlnliðshlífar.

Herdís L. Storgaard
- framkvæmdastjóri Árvekni-

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica