Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Mun færri börn slasast nú heima við eða í frítímum en áður

19.7.2004

Í rannsókn sem Erik Brynjar Schweitz Eiríksson læknanemi gerði nýlega í samvinnu við Slysaskrá Íslands, landlæknisembættið og fl. kemur fram að fækkað hefur verulega slysum á börnum, á aldrinum 0-4 ára, í heimahúsum og frítíma fjölskyldunnar.

Árið 2003 var heildarfjöldi barna sem slösuðust í heimahúsi og frítíma 1392, sem er um 75% allra slysa sem börn á aldrinum 0-4 ára urðu fyrir. Tölurnar eru frá slysa- og bráðadeild LSH.

Af þeim 1392 börnum sem fengu aðhlynningu á deildinni voru 46 börn undir 1 árs aldri, 306 voru 1 árs, 409 voru 2 ára, 325 3 ára og 306 voru 4 ára.

Tæp 49% barnanna féllu og slösuðust en fall er helsta ástæða þess að börn á þessum aldri slasast. Þroski barna á þessum aldri er þannig að börnin eru mjög óstöðug en á sama tíma eru þau að kanna umhverfi sitt og gera sér á engan hátt grein fyrir hættunum þar. Því er afar mikilvægt að Heimilið og umhverfi þess sé gert eins öruggt og hægt er.

Fram kemur í rannsókn Eriks að tíðni barnaslysa í yngsta aldurshópnum hefur greinilega lækkað mjög hér á landi á síðustu 10 árum. Tíðni frítíma- og heimaslysa barna er nú lægri en hjá Dönum. Hingað til hefur Ísland verið talið vera með hæstu tíðni barnaslysa á Norðurlöndum og Danir komið þar næst á eftir. Enn sem fyrr er tíðnin lægst hjá Svíum og sýnir það að hér á landi er hægt að gera enn betur.

Höfundur skýrslunnar vill taka fram að eftir er að vinna enn frekar úr niðurstöðunum m.a. til að fá nánari vísbendingar um um stöðu mála á Íslandi miðað við nágrannalöndin.

Herdís L. Storgaard

verkefnastjóri Árvekni



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica