Mörg tannslys í vatnsrennibrautum
Hvers vegna verða þessir árekstrar þrátt fyrir að ljósabúnaðurinn sé til staðar? Einfaldlega vegna þess að sumir sundlaugargestir virða ekki ljósin. Mikið hefur verið um símhringingar til Árvekni vegna þessara slysa og eru margir foreldrar reiðir sundlaugarvörðum fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir slysið.
Það er mikilvægt að taka á þessu vandamáli sem fyrst og það þarf fyrst og fremst að gera í samstarfi við foreldrana. Það er á ábyrgð þeirra að brýna fyrir börnum sínum að fara eftir þeim reglum sem gilda í vatnsrennibrautum og að það geti verið hættulegt að fara ekki eftir þeim. Þeir verða að útskýra fyrir þeim hvernig ljósin virka.
Á nokkrum sundastöðum hafa sundlaugarverðir mátt grípa til þeirra ráða að reka þann uppúr sundlauginni sem ekki hefur virt umgengnisreglurnar og hefur það skilað nokkrum árangri.
Nú er bara spurning hvort fleiri sundstaðir ættu ekki að grípa til þessara ráða. Það er ljóst að eitthvað verður að gera. Foreldrar eiga ekki að sætta sig við að börnin þeirra verði fyrir alvarlegum og kostnaðarsömum slysum, vegna þess að einhverjir aðrir en þau fara ekki eftir settum reglum.
Herdís Storgaard
-framkvæmdastjóri Árvekni-
