Hjá Árvekni er haldið utan um fjölda drukknunarslysa á börnum. Undirrituð gerði rannsókn, ásamt Pétri Luðvígssyni sérfræðingi og Guðrúnu Guðmundsdóttur lækni á Barnaspítala Hringsins, á tíðni
Á árunum 1994-1997 lentu 8 börn í drukknunarslysum. Þar af dóu 6 börn en 2 þeirra urðu fyrir nærdrukkunum en varð ekki meint af.
Frá árinu 1998 og til dagsins í dag hafa 10 börn lent í drukknunarslysum. Tvö þeirra dóu en 8 börn urðu fyrir nærdrukknun en engu þeirra varð meint af.
Í ár hafa orðið fjögur drukknunarslys á börnum á fáum vikum en sem betur fer tókst að bjarga þeim öllum og engu þeirra varð meint af.
Þetta er umhugsunarefni fyrir rekstararaðila sundstaða og foreldrana í landinu um að aldrei sé of varlega farið. Í gildi eru reglur um öryggi á opinberum sundstöðum og í kennslulaugum. Í þeim er að finna atriði sem þurfa að vera í lagi til þess að gera sundstaðina öruggari. Þrátt fyrir þessar reglur er eitthvað sem fer úrskeiðis. Hitt er annað mál að þessi fjögur börn eru á lífi sem sýnir að þekking þeirra sem komu að slysunum eða voru við vinnu í sundlaugunum, á skyndihjálp er meiri en á árum áður. Það er mikil breyting.
Eins og áður segir er eitthvað að fara úrskeiðis þrátt fyrir ítarlegar reglur um öryggi á sundstöðum. Það verður því að gera betur. Við hjá Árvekni viljum fyrst og fremst hvetja foreldra og þá aðila sem vinna við gæslu barna að gæta þeirra betur þegar farið er í sund en raunin er. Nú er tímabært að gera ítarlegan gátlista út frá gildandi reglum þar sem fram koma öll öryggisatriði. Það þarf að vera ljóst hver er ábyrgur fyrir að gera úttekt á hverju atriði fyrir sig og hversu oft þurfi að skoða viðeigandi búnað. Þessar upplýsingar munu verða einskonar skoðunarhandbók fyrir hverja sundlaug. Það mætti jafnvel hugsa sér að komið verði fyrir skoðunarmiða á sundstöðunum þannig að gestir geti séð hvort hann hafi verið skoðaður og hvort hann hafi uppfyllt þær öryggiskröfur sem gerðar eru til sundstaða. Fara þyrfti yfir gátlistann árlega og endurnýja skoðunarmiðann ef allt er í lagi.
Í reglum um öryggi sundstaða er tekið fram að einungis börn sem náð hafa 8 ára aldri megi fara ein í sund. Það er þó alfarið á ábyrgð foreldranna að leyfa þeim það. Það eru ekki öll 8 ára börn sem hafa náð góðum tökum á sundinu. Þegar farið er með yngra barn í sund er mikilvægt að líta aldrei af því, hvað þá að skilja það eftir í lauginni á meðan farið er í heitapottinn. Slíkt er vítavert gáleysi að hálfu þeirra sem það gera. Það má alls ekki treysta eingöngu á starfsmenn og umhverfi sundstaðanna. Börn geta alls staðar drukknað ef þeirra er ekki er nægilega vel gætt.
Herdís Storgaard
-framkvæmdastjóri Árvekni-
Senda grein