Alvarlegir höfuðáverkar vegna fallslysa úr innkaupakerru
Það er mjög mikilvægt að foreldrar og aðrir sem þurfa að hafa börn með í innkaupaferð noti áföstu barnastólana fyrir yngri börnin og sætin fyrir þau eldri. Slysin verða mjög oft vegna þess að börnunum er leyft að sitja eða standa í kerrunni sjálfri. Mikilvægt er að skilja aldrei börn eftir eftirlitslaus, jafnvel þó um eitt augnablik sé að ræða, því að þau eru snör í snúningum ef þau ætla sér eitthvað. Nú eru fleiri og fleiri verslanir með innkaupakerrur sem hafa áfasta barnastóla með beislum og öryggisólar fyrir barnasætin og viljum við hvetja foreldra til þess að nota þær. Einnig viljum við hvetja aðrar verslanir til þess að láta setja öryggisólar í allar innkaupakerrur.
Það sem margir gera sér ekki grein fyrir er að fall úr innkaupakerru er gífurlega hátt miðað við stærð barnsins og ekki má gleyma því að í flestum verslunum eru steingólf, sem gerir það að verkum að oft hljóta börnin alvarleg höfuð högg.
Verslunareigendur verða líka að sýna ábyrgð varðandi þetta og hafa gott eftirlit og viðhald á kerrunum. Fara þarf reglulega yfir hjólin og hreinsa þau og smyrja. Taka þarf úr umferð kerrur sem eru bilaðar. Einnig er mikilvægt að þeir hugi að bílastæðum og gangstéttum fyrir utan verslanirnar en þar hafa líka orðið slys vegna þessa að holur hafa myndast í malbikið eða hellur brotnað eða færst til. Slíkt þarf að laga áður en einhver slasar sig. Meðan beðið er eftir viðgerð er æskilegt að merkja holuna á áberandi hátt.
Kynntu þér nánar hvernig koma má í veg fyrir þessi slys hér.
Herdís L. Storgaard
- framkvæmdastjóri Árvekni-
