Árvekni, Löggildingarstofa og Umferðarstofa senda frá sér fréttatilkynningu
Reykjavík 12. nóvember 2002
Fréttatilkynning
Árvekni, Löggildingastofa og Umferðarstofa vilja benda á eftirfarandi:
Ekki er hægt að nota bandaríska barnabílstóla ( FMVSS) sem framleiddir eru eftir 1. september sl. á Íslandi.
Vakin er athygli á því að 1. september 2002 gengu í gildi í Bandaríkjunum nýjar reglur varðandi festingar FMVSS merktra barnabílstóla. Í reglunum kemur fram að allir barnabílstólar og bifreiðar í Bandaríkjunum sem framleiddar eru eftir 1. september 2002 eiga að vera útbúnir sérstökum festingum eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd.

Þetta þýðir að ekki er hægt að nota barnabílstóla sem framleiddir eru fyrir Bandaríkjamarkað eftir 1. september 2002 á Íslandi. Mikilvægt er að neytendur átti sig á því að FMVSS merktir barnabílstólar eru ekki lakari en aðrir barnabílstólar en þeir eru sérstaklega framleiddir til notkunar fyrir bandarískar bifreiðar sem hafa ofangreindar festingar en bifreiðar á Íslandi eru almennt ekki með festingarbúnað til að festa bandaríska barnabílstóla í bíla.
Upplýsingar um breytingarnar má nálgast á eftirfarandi vefslóð:
http://www.nhtsa.dot.gov/cars/rules/rulings/UCRA-OMB-J08/FinalRule.html
Frekari upplýsingar veita:
Árvekni: Herdís L Storgaard, herdis@arvekni.is , sími: 552 4450
Markaðsgæsludeild Löggildingarstofu: Fjóla Guðjónsdóttir, fjola@ls.is , sími 510 1100
Umferðarstofa: Margrét Sæmundsdóttir, margret@us.is , sími 580 2000
